24 september 2025

/

Innviðaráðuneytið

Samráðsgátt: Aðgerðir gegn svikastarfsemi í fjarskiptakerfum og vernd fjarskiptasæstrengja

{image.Description}

Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjölmiðla hafa verið birtar í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 8. október 2025. 

Megintilgangur með frumvarpsdrögunum er tvíþættur. Annars vegar er markmiðið að sporna við þeirri svikastarfsemi sem herjað hefur á landsmenn í formi tölvupósts og SMS skilaboða og hins vegar að skerpa á lagaákvæði um vernd fjarskiptasæstrengja í hafi til að auka öryggi fjarskipta til og frá landinu.

Þá er einnig í frumvarpinu að finna ýmis ákvæði til breytinga á gildandi lögum sem að mati ráðuneytisins veru til bóta, s.s. sérstakt gjaldtökuákvæði fyrir úthlutun og afnot af fjarskiptatíðnum.

Í frumvarpsdrögum er lagt til að fjarskiptafyrirtækjunum verði heimilt að skima efni fjarskipta vélrænt án mannlegrar íhlutunar til að verja fjarskiptanet og vernda fólk og fyrirtæki gegn slíkri svikastarfsemi. Algengt er að þegar fólk fær svikaskilaboð eða svikatölvupóst leiði skilaboðin viðkomandi á svikavefsíðu, t.d. sem líkir eftir vefsíðunni island.is eða vefsíðu fjármálafyrirtækis.

Lagt er til að CERT-IS haldi úti lista og gera fjarskiptafyrirtækjum heimilt að loka á aðgang að slíkum svikavefsíðum hraðar en nú þekkist og lágmarka tjón ef svika SMS eða tölvupóstar komast í gegnum framangreinda skimun.

Skerpt á vernd fjarskiptasæstrengja

Þá er í frumvarpsdrögum einnig lagt til að skerpa á ákvæði um vernd fjarskiptasæstrengja er varðar helgunarsvæði m.t.t. flottrolla og botnfestinga sjókvía. Breytt heimsmynd hefur sett kastljósið á mikilvægi slíkra fjarskiptainnviða fyrir íslenskt samfélag og að mati ráðuneytisins er nauðsynlegt að tryggja betur öryggi slíkra innviða.