25 september 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Blóðbankinn fluttur í Kringluna
Blóðbankinn hefur flutt starfsemi sína í Kringluna. Tímamótunum var fagnað með stuttu opnunarhófi í dag. Vonir eru bundnar við að staðsetning blóðbankans á einum fjölfarnasta stað höfuðborgarinnar verði til þess að fjölgi í hópi blóðgjafa. Til að mæta lágmarksþörfum heilbrigðiskerfisins þarf blóðbankinn um 16.000 blóðgjafir á ári, eða um 70 blóðgjafir á dag. Þörf er á 2.000 nýjum blóðgjöfum á ári í stað þeirra sem hætta að gefa vegna aldurs eða af öðrum ástæðum.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra var viðstödd opnun blóðbankans í Kringlunni í dag og sagðist vongóð um að nýja staðsetningin verði til þess að fjölga blóðgjöfum, líkt og gerðist þegar blóðbankinn á Akureyri flutti starfsemi sína á Glerártorg. Hún lagði áherslu á hve þýðingarmiklu hlutverki blóðbankinn gegnir í heilbrigðiskerfinu og þar skipti framlag blóðgjafanna öllu máli: „Ég vann áður sem svæfinga- og gjörgæslulæknir og hef hengt upp ófáa blóðpoka og veit svo sannarlega hvaða þýðingu þetta hefur.”
Björn Rúnar Lúðvíksson, framkvæmdastjóri klínískrar rannsókna- og stoðþjónustu Landspítala: „Nú hefur mikilvægum áfanga verið náð þar sem einn af hornsteinum íslenskrar heilbrigðisþjónustu sem eru blóðgjafarnir okkar fá bætt aðgengi og aðstöðu til blóðgjafa. Þar hefur okkur tekist að færa þessa kjarnastarfsemi að einum best þekkta og fjölsóttasta stað höfuðborgarsvæðisins. Erum við því full bjartsýni að með þessu móti muni okkur takast að fjölga nýskráðum blóðgjöfum og með því þann frábæra kjarnahóp blóðgjafa sem gefa líf með reglulegum hætti.“
Til að mæta lágmarksþörfum þarf Blóðbankinn 16.000 blóðgjafir á ári eða um 70 blóðgjafir á dag, allan ársins hring. Þörf er á 2.000 nýjum blóðgjöfum á ári í stað þeirra sem hætta að gefa sökum aldurs eða annarra orsaka.
Hægt er að panta tíma í blóðgjöf og nálgast fræðsluefni um Blóðbankann á heimasíðu Blóðbankans.
Á myndinni eru Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og Björn Rúnar Lúðvíksson, framkvæmdastjóri klínískrar rannsókna- og stoðþjónustu Landspítala.