25 september 2025

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Kostnaður við þriðja útboð ríkisins á hlutum í Íslandsbanka

{image.Description}
Hari

Markaðssett útboð á hlutum ríkissjóðs í Íslandsbanka fór fram í maí síðastliðnum þar sem eftirstandandi 45,2% eignarhlutur ríkisins var seldur. Útboðið var haldið í samræmi við lög þar um með það að markmiði að tryggja gagnsæi, hagkvæmni, hlutlægni og jafnræði í útboðsferlinu.

Kostnaður ríkisins vegna söluferlisins skiptist í þrennt: umsjónarþóknun, söluþóknun og annan kostnað.

Umsjónarþóknun var 0,75% af heildarvirði útboðs, 679,3 m.kr., og var fest í samning við ráðningu umsjónaraðila í ágúst 2024. Þóknunin skiptist jafnt á milli Barclays, Citigroup Global Markets Europe AG og Kviku.

Söluþóknun var einnig 0,75% af heildarvirði útboðs, 679,3 m.kr., og rann til allra tíu söluráðgjafa sem ráðnir voru.Upphæð söluþóknunar var ákveðin í 4. gr. laga nr. 80/2024 um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

Í anda jafnræðis og hlutlægni var ákveðið að byggja söluþóknun á innsendum tilboðum frekar en seldum hlutabréfum, að teknu tilliti til markaðsþreifinga. Skiptingin var eftirfarandi:


ABN Amro

6.517 þ.kr.

Arctic Securities

32.868 þ.kr.

Arctica Finance

63.621 þ.kr.

Arion banki

102.981 þ.kr.

Barclays

87.370 þ.kr.

Citi

97.555 þ.kr.

JP Morgan

15.992 þ.kr.

Kvika banki

182.079 þ.kr.

Landsbankinn

82.540 þ.kr.

UBS Europe SE

7.797 þ.kr.

   

 

Undir annan kostnað fellur lögfræðikostnaður, kostnaður við endurskoðendur, fjármálaráðgjöf, ráðgjöf vegna kynningar á útboði, almennur kostnaður við útboðið og útlagður kostnaður söluaðila.

Í ráðningarsamningi við söluaðila var kveðið á um að söluaðilar gætu fengið útlagaðan kostnað greiddann af seljanda. Stærsti liðurinn í útlögðum kostnaði söluaðila snýr að sérhæfðum hugbúnaði fyrir útboð. Kvika lagði út fyrir ýmsum kostnaði sem viðkemur skráningu í kauphöll.


ABN Amro útl. kostn.

1.854 þ.kr.

Arctic Securities útl. kostn.

1.508 þ.kr.

Citi útl. kostn.

2.215 þ.kr.

JP Morgan útl.kostn

2.812 þ.kr.

Kvika útl. kostn.

25.851 þ.kr.

   

 

BBA Fjeldco og Milbank þjónustuðu seljanda. Logos og White&Case þjónustuðu umsjónaraðila. Lögfræðikostnaður var eftirfarandi:


LOGOS slf.

31.416 þ.kr.

Milbank

124.584 þ.kr.

White&Case

101.959 þ.kr.

BBA Fjeldco ehf.

74.379 þ.kr.

   

 

Aton veitti seljanda þjónustu vegna kynningarmála. Ratsjá var milliliður á milli auglýsenda og seljanda.


Aton ehf.

30.713 þ.kr.

Ratsjá ehf.

3.154 þ.kr.

   

 

Landsbankinn var fjármálaráðgjafi seljanda.


Landsbankinn hf. ráðgj.

120.280 þ.kr.

   

 

Fjármálaeftirlit Seðlabankans las yfir útboðsskjöl og Íslandsbanki og seljandi skiptu með sér endurskoðunar-, og lögfræðikostnað sem féll til vegna útboðslýsingar.


Seðlabanki Íslands

3.863 þ.kr.

Íslandsbanki hf.

120.815 þ.kr.

   

 

Samtals er kostnaðurinn 2.000.520 þ. kr., eða um 2,22% af heildarsöluvirði. 

Hafa verður í huga að söluferlið hófst haustið 2024 en var aflýst með stuttum fyrirvara. Um það bil helmingurþess sem fellur undir annan kostnað er tilkomið vegna undirbúnings og aflýsingar það ár.

Hér fylgir samantekt yfir allar þrjár sölurnar sem ríkið hefur staðið fyrir á hlut sínum í Íslandsbanka. Fyrri tvær sölurnar voru framkvæmdar af Bankasýslu ríkisins (BR) en síðasta salan af fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Ef kostnaður sem greiddur var vegna hins aflýsta útboðs árið 2024 er dreginn frá lækkar hlutfall kostnaðar við útboðið 2025 í 1,9%.

 


Sala Íslandsbanka

Hlutfall

Fjöldi hluta

Gengi

Söluandvirði

Kostnaður

Hlutfall

Frumútboð

35,0%

699.999.993

79,0

55.299.999.447

1.674.606.581

3,03%

Tilboðsfyrirkomulag

22,5%

450.000.000

117,0

52.650.000.000

700.000.000

1,33%

Samtals selt af BR

57,5%

1.149.999.993

93,9

107.949.999.447

2.374.606.581

2,20%

Markaðssett útboð FJR

42,5%

850.000.007

106,6

90.576.000.746

2.010.519.730

2,22%

Samtals selt

100,0%

2.000.000.000

99,3

198.526.000.193

4.385.126.311

2,21%