25 september 2025
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Uppgjör A1-hluta ríkissjóðs fyrir fyrstu sex mánuði ársins
Uppgjör A1-hluta ríkissjóðs fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2025 liggur nú fyrir. Uppgjörið í heild sinni er aðgengilegt á vef Fjársýslu ríkisins. Undanfarið hefur dráttur verið á birtingu ársfjórðungsuppgjöra ríkissjóðs. Fjársýslan vinnur að bættu verklagi til að tryggja að uppgjör ríkissjóðs verði birt tímanlega eftir lok hvers ársfjórðungs.
Ársfjórðungsuppgjör Fjársýslunnar eru gerð á grundvelli alþjóðlegra reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila sem miða við rekstrargrunn, IPSAS-staðals. Framsetning og flokkun upplýsinga um fjármál skv. 1. gr. fjárlaga eru samkvæmt hagskýrslustaðlinum GFS. GFS er ætlað að meta efnahagsleg áhrif opinberrar fjármálastefnu og greina áhrif hennar á hagkerfið. Því eru reiknaðir liðir eins og gjaldfærsla vegna hækkunar lífeyrisskuldbindingar og reiknuð gjaldfærsla af sölu Íslandsbanka í uppgjöri Fjársýslu ekki færð með sama hætti um rekstrarreikning skv. GFS-staðlinum.
Heildarafkoma ársins 2025 á GFS-grunni var endurmetin í vinnu við gerð fjárlagafrumvarps 2026. Þar er afkoma ársins 2025 áætluð neikvæð um 19,2 ma.kr. fyrir A1-hluta ríkissjóðs en til samanburðar gera fjárlög ársins 2025 ráð fyrir 62,6 ma.kr. neikvæðri afkomu. Sé horft til A-hluta ríkissjóðs í heild er í fjárlagafrumvarpi 2026 áætlað að halli ársins 2025 verði 23,5 ma.kr. Hagstofa Íslands hefur nýverið birt uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins og þar kemur fram að heildarafkoma A-hluta ríkissjóðs samkvæmt GFS sé neikvæð um 6,4 ma.kr. á tímabilinu.
- Afkoma tímabilsins án afkomu hlutdeildarfélaga skv. rekstraryfirliti Fjársýslunnar skv. IPSAS-staðlinum var neikvæð um 137,7 ma.kr. Afkoma sama tímabils árið áður var neikvæð um 76,4 ma.kr. Skýringu á afkomumuninum má helst rekja til þess að reiknuð gjaldfærð hækkun á lífeyrisskuldbindingu B-deildar LSR í samræmi við hækkun vísitölu lífeyrisskuldbindinga er 76 ma.kr. en var 17 ma.kr. á fyrstu sex mánuðunum 2024. Þá koma inn áhrif af nýjum lánum vegna uppgjörs ÍL-sjóðs en afkomuáhrif þeirra eru neikvæð um 14 ma.kr. Í uppgjörinu. Tekjur nema 650 ma.kr og eru 55 ma.kr. hærri en í áætlun. Leiðrétt innan ársins er frávik skatta og tryggingagjalda frá áætlun jákvætt um 4,7% miðað við fjárlög ársins.
Sundurliðun á tekjum ríkis og gjöldum niður á málefnasvið, málaflokka og ríkisaðila samanborið við rekstraráætlun og fjárheimildir ársins kemur fram í uppgjöri sem Fjársýsla ríkisins birtir.