26 september 2025
/
Innviðaráðuneytið
Jöfnunarsjóður: Nýtt úthlutunarlíkan notað í fyrsta sinn
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur samþykkt tillögu ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um fyrstu áætlanir fyrir árið 2026 um almenn jöfnunarframlög, almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla og framlög vegna sérþarfa fatlaðra barna.
Nýtt úthlutunarlíkan Jöfnunarsjóðs
Samþykkt var tillaga ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um fyrstu áætlun almennra jöfnunarframlaga fyrir árið 2026. Um er að ræða fyrstu áætlun skv. nýju úthlutunarlíkani sem tekur við af útgjaldajöfnunarframlagi, tekjujöfnunarframlagi og fasteignaskattsframlagi. Framlagið er reiknað skv. nýjum lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 56/2025.
Fjárhæð framlaganna nemur 28.175 m.kr. en af þeirri fjárhæð reiknast 1% í svokallað höfuðstaðaálag, eða 281.750 þús.kr. Til almennrar úthlutunar renna því 27.893.250 þús.kr. sem skipt er með nýju úthlutunarlíkani sbr. meðfylgjandi yfirlit.
Gert er ráð fyrir því að áætlunin verði uppfærð jafnt og þétt eftir því sem forsendur gefa tilefni til, líkt og áður átti við um þau framlög sem nýtt úthlutunarlíkan tekur við af.
Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla
Ráðherra hefur einnig samþykkt tillögu ráðgjafanefndar um áætlaða úthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2026, sbr. reglugerð nr. 351/2002, að fjárhæð 16.060 m.kr. Þar af eru 60 m.kr. vegna áætlaðs uppgjörs framlaga ársins 2024.
Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í apríl 2026 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2026, endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2024 og endurskoðunar á áætluðum útsvarstekjum sveitarfélaga á árinu 2025.
Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar.
Sérþarfir fatlaðra grunnskólabarna
Loks samþykkti ráðherra tillögu ráðgjafanefndar um áætlun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra grunnskólabarna fyrir árið 2026. Framlögin sem nema 3,95 ma.kr. eru reiknuð með öllum börnum með SIS-C mat umfram flokk 4 í hverju sveitarfélagi án umsókna, utan Reykjavíkurborgarinnar. Framlag til borgarinnar byggist á sérstökum samningi.