26 september 2025
/
Innviðaráðuneytið
Jöfnunarsjóður: Uppfærðar áætlanir fyrir árið 2025
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur samþykkt tillögur ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaðar áætlanir fyrir árið 2025 um útgjaldajöfnunarframlög, framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða og framlög vegna sérþarfa grunnskólabarna.
Útgjaldajöfnunarframlög
Samþykkt var tillaga ráðgjafarnefndar um endurskoðaða áætlun útgjaldajöfnunarframlaga til sveitarfélaga árið 2025 miðað við uppfærðar forsendur.
Samkvæmt áætluninni er lagt til að úthlutað verði 16,2 ma.kr. í A-hluta og 575 m.kr. vegna B-hluta. Í lok árs verður svo úthlutað til viðbótar 175 m.kr. í B-hluta vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur á árinu 2025 og 50 m.kr. vegna akstursþjónustu fatlaðs fólks úr dreifbýli á árinu 2025. Samtals eru útgjaldajöfnunarframlög því 17 ma.kr. á árinu 2025.
Framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða
Þá var samþykkt tillaga ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga til þeirra sveitarfélaga sem bjóða nemendum upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum á árinu 2025 sbr. lög nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Samkvæmt áætluninni er heildarfjármagn til ráðstöfunar tæplega 3,9 ma.kr. á árinu 2025.
Framlagið skiptist hlutfallslega á milli sveitarfélaga eftir heildarnemendafjölda í grunnskólum í hverju sveitarfélagi 1. janúar 2025 skv. tölum Hagstofu Íslands og greiðist mánaðarlega til sveitarfélaga að undanskildum júlímánuði.
Sérþarfir fatlaðra grunnskólabarna
Einnig var samþykkt tillaga ráðgjafarnefndar um endurskoðaða áætlun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra grunnskólabarna fyrir árið 2025. Framlögin sem nema 3,5 ma.kr. eru reiknuð með öllum börnum með SIS-C mat umfram flokk 4 í hverju sveitarfélagi án umsókna, utan Reykjavíkurborgarinnar. Framlag til borgarinnar byggist á sérstökum samningi.