29 september 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Aðildarskjöl Íslands að Vínarsamningnum um milliríkjasamninga afhent Sameinuðu þjóðunum
Utanríkisráðherra afhenti aðildarskjöl Íslands að Vínarsamningi um milliríkjasamninga til vörslu Sameinuðu þjóðanna þegar hún var í New York í liðinni viku í tilefni leiðtogaviku 80. allsherjarþings stofnunarinnar.
Vínarsamningurinn var gerður árið 1969 til að skrásetja þær reglur sem eiga við um samninga sem ríki gera sín á milli og byggja samskipti sín á. Samningurinn skipar sér sess sem gildandi heimild þjóðaréttar um gerð, gildi og túlkun milliríkjasamninga og er litið á hann sem eina helstu lagastoð alþjóðakerfis ríkja.
Við afhendingu aðildarskjalanna varð Ísland 118. aðildarríki samningsins. Íslensk stjórnvöld hafa hins vegar um langt skeið framfylgt ákvæðum hans í ljósi stöðu þeirra sem bindandi þjóðréttarvenjur. Er formleg aðild til marks um stuðning Íslands við alþjóðakerfi ríkja sem byggir á skráðum reglum sem eiga við um öll ríki á jafnræðisgrundvelli.
„Í Vínarsamningnum eru skráðar leikreglur alþjóðlegra samskipta sem við Íslendingar reiðum okkur á í þeim samningum sem við gerum. Alþjóðalög eru skjöldur smærri ríkja á víðsjárverðum tímum sem þessum og við höfum hag af því að reglur þeirra séu bæði skýrar og virtar,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Samningurinn tekur formlega gildi gagnvart Íslandi 25. október nk.