29 september 2025

/

Innviðaráðuneytið

Play hættir starfsemi – tilkynning frá Samgöngustofu

{image.Description}
Hari

Samgöngustofa hefur gefið út leiðbeiningar til farþega Play eftir að tilkynnt var í morgun að félagið hafi hætt starfsemi og öll flug verði felld niður.

Tilkynning Samgöngustofu

Play hefur lýst því yfir að félagið hafi hætt starfsemi.

Hvernig kemst ég á áfangastað?
Farþegum Play er bent á að kanna möguleika á flugi hjá öðrum flugfélögum.
 
Hver eru réttindi mín?
Flugfarþegum sem keyptu flugmiða með kreditkorti er bent á að leita til greiðslukortafyrirtækja.

Farþegar sem keyptu ferðina af evrópskum ferðaskipuleggjanda sem seldi flugmiðann sem hluta af svokallaðri alferð (þ.e. samsettri ferð þar sem flug er selt ásamt gistingu eða öðrum þjónustuþáttum) eiga rétt á heimflutningi á grundvelli samevrópskra reglna um pakkaferðir. Farþegum er bent á að hafa samband við þann ferðaskipuleggjanda sem þeir keyptu ferð sína af.

Flugfarþegar kunna jafnframt að eiga kröfu á hendur Play (Fly Play hf.), m.a. á grundvelli reglugerðar um réttindi flugfarþega og geta sent kvörtun til Samgöngustofu vegna kostnaðar við bókunar nýs flugs. Mun stofnunin úrskurða í málunum. Þegar um gjaldþrot er að ræða þarf að lýsa slíkum kröfum í þrotabú flugrekandans..

Aðrar síður með leiðbeiningum