29 september 2025
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Samráðsgátt: Ný lög um réttindavernd fatlaðs fólks
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um réttindavernd fatlaðs fólk. Um ný heildarlög er að ræða og gert ráð fyrir að þau leysi af hólmi gildandi lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.
Meginmarkmið frumvarpsins er að tryggja fötluðu fólki viðeigandi stuðning við vernd hvers konar réttinda og stuðla að bættu jafnrétti og aðgengi í þjónustu við fatlað fólk. Jafnframt er áhersla lögð á að tryggja að sjálfsákvörðunarréttur fatlaðs fólks sé virtur og fyllsta réttaröryggis gætt þegar brýna nauðsyn ber til að grípa inn í líf þess. Við gerð frumvarpsins var tekið mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
„Í frumvarpinu legg ég áherslu á að tryggja aðgang fatlaðs fólks að samfélaginu og stuðning til sjálfstæðs lífs. Frumvarpið er afar mikilvægt og ég er stolt af því að það sé komið fram,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Skýrari verkaskipting
Frumvarpinu er ætlað að skerpa á hlutverki réttindagæslu fyrir fatlað fólk og tryggja skýrari verkaskiptingu á milli sýslumanna og réttindagæslu svo ljóst sé til hvers ætlast sé af þeim.
Frumvarpinu er einnig ætlað að bregðast við kerfislægum hindrunum sem ákveðinn hópur fatlaðs fólks hefur mætt við aðgang að fjármálum sínum, einkum þeirra sem búa í búsetukjörnum og geta ekki notað rafræn skilríki.
Þá er frumvarpinu ætlað að auka skilvirkni í málsmeðferð og ákvarðanatöku í málum er varða nauðung í þjónustu við fatlað fólk, einfalda ferla, minnka biðtíma eftir ákvörðun, auðvelda eftirlit og tryggja að mál séu áfram afgreidd á samræmdan hátt.
Nýtt heiti
Ástæða þótti til að breyta heiti laganna í réttindavernd fatlaðs fólks þar sem heitið lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk endurspeglar ekki að fullu efni þeirra, enda fjalla þau ekki eingöngu um réttindagæslu, heldur einnig um hlutverk persónulegra talsmanna við að aðstoða notendur við gæslu og vernd hagsmuna sinna og bann við beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk.