01 október 2025
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið
Beint streymi: Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu
Heilbrigðisráðuneytið og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið standa fyrir nýsköpunarráðstefnu í Grósku í dag. Fullbókað er á ráðstefnuna en hægt er að horfa á beint streymi hér auk þess sem upptaka frá streyminu verður aðgengileg að ráðstefnunni lokinni.
Áhugasamir geta einnig sent inn spurningu til þátttakenda pallborðs um leikreglur kl 14:40.
Dagskráin er yfirgripsmikil og kemur meðal annars inn á áskoranir, tækifæri og mögulegar lausnir við þróun heilbrigðiskerfis framtíðarinnar.
Ráðherrar kynna ný verkefni kl 15:15
Alma Möller heilbrigðisráðherra og Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra loka svo ráðstefnunni með því að kynna ný verkefni sem miða að því að greiða leið nýsköpunarfyrirtækja að innleiðingu heilbrigðislausna á ábyrgan og skilvirkan hátt.