01 október 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Eggert Benedikt settur í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar

{image.Description}
Eggert Benedikt Guðmundsson hefur tímabundið verið settur forstjóri Hafrannsóknastofnunar.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur sett Eggert Benedikt Guðmundsson tímabundið í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar en núverandi forstjóri stofnunarinnar hefur óskað eftir leyfi út sinn skipunartíma sem er til marsloka næsta árs.

Eggert Benedikt er verkfræðingur og með MBA-gráðu frá IESE Business School í Barcelona. Hann var forstjóri HB Granda frá 2005-2012 og forstjóri N1 frá 2012-2015. Áður vann Eggert Benedikt um árabil við viðskiptaþróun hjá Philips Electronics í Belgíu og Bandaríkjunum.

Undanfarið hefur Eggert Benedikt unnið að málefnum sjálfbærrar þróunar sem forstöðumaður Grænvangs og nú síðast sem leiðtogi sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu.

Eggert Benedikt hefur þegar hafið störf.