01 október 2025
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Heilsu-Kría stuðlar að nýsköpun í heilbrigðiskerfinu
Fjármögnun nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu verður í forgrunni nýs áhersluverkefnis á vegum Nýsköpunarsjóðsins Kríu (NSK). Um 300 milljónum króna verður ráðstafað af fyrirliggjandi fjárfestingarheimildum sjóðsins til átaksins, sem hefur hlotið vinnuheitið Heilsu-Kría, með möguleika á stækkun ef eftirspurnin reynist mjög mikil. Fjárfestingaáætlun og kröfur verða kynntar á næstu vikum en markmiðið er að verkefnið hefjist fyrir áramót og standi fram á næsta ár.
Frá þessu greindi Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, á ráðstefnu um nýsköpun í heilbrigðiskerfinu sem fram fór í Grósku í dag. Þar var sérstök áhersla lögð á þær hindranir sem hafa torveldað innleiðingu nýrra lausna í heilbrigðiskerfinu og hvernig megi greiða leið nýsköpunar á þessu sviði.
Hagaðilar í nýsköpunar- og heilbrigðisgeiranum hittust á málstofu í september og útlistuðu hvað mætti betur fara í þessum efnum. Ábendingar þeirra voru fyrirferðarmiklar á ráðstefnunni í dag, en ein þeirra er brýn þörf á fjárstuðningi á fyrstu stigum við þá frumkvöðla og sprota sem vinna að nýsköpun í heilbrigðistækni og þjónustu. Heilsu-Kríu er ætlað að koma til móts við þá þörf og gefa nýsköpun byr undir báða vængi.
Lærdómur af fyrri reynslu
„Nýsköpunarsjóðurinn Kría hefur farið vel af stað á árinu. Við höfum átt gott samstarf við stjórnendur sjóðsins um fjármögnun verkefna í takti við áherslur stjórnvalda og áskoranir í samfélaginu. Það er okkur afar mikilvægt að þessi stuðningur snúist ekki bara um fjármagnið sem slíkt, heldur viljum við læra af reynslu fyrri ára og gera það sem við getum til að stuðningurinn verði markviss og skili sér í nýjum lausnum á grundvelli forgangsröðunar og klínískri þörf,“ segir Logi.
Hrönn Greipsdóttir, forstjóri NSK, tekur í sama streng. „Við höfum fundið fyrir mikilli og ánægjulegri grósku í nýsköpun á sviði heilbrigðistækni og þjónustu. Eitt af lykilverkefnum NSK er að styðja við nýsköpunarfyrirtæki með fjárfestingu og tryggja þannig að efnileg sprotafyrirtæki komist á legg, í samvinnu við einkafjárfesta. Í þessu verkefni munum við líka óska eftir samstarfi við fagaðila við mat á fjárfestingarkostum.“
Gervigreind verði nýtt í auknum mæli
Logi greindi einnig frá því á ráðstefnunni í dag að menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið vinni nú að stefnumótun um gögn og gagnainnviði, sem eru grundvöllur þess að heilbrigðisstofnanir og fleiri aðilar geti nýtt gervigreindartækni til að bæta heilbrigðisþjónustu. Jafnframt er unnið að því að greina innlenda getu Íslands á sviði gagnaöflunar, vörslu gagna, stafrænna innviða og sérfræðiþekkingar.
„Gögn eru ein mikilvægasta auðlindin í upplýsingasamfélagi nútímans og þar eru heilbrigðisgögn sérstaklega verðmæt. Við þurfum að umgangast þau gögn af virðingu við einstaklinginn á sama tíma og við leitum leiða til að hagnýta þau í þágu samfélags og heilsu þjóðar,“ segir Logi.
Nánar um Nýsköpunarsjóðinn Kríu
Í frumvarpi sem samþykkt var í júní 2024 voru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (NSA) og Kría – sprota- og nýsköpunarsjóður, sameinaðir í nýjan sjóð undir heitinu Nýsköpunarsjóðurinn Kría. Nýsköpunarsjóðnum Kríu er ætlað að veita stuðning við nýsköpun í formi fjárfestinga og mun sjóðurinn geta beitt fjölbreyttum aðferðum við fjárfestingu í samræmi við stöðu fjármögnunarumhverfis og stefnu stjórnvalda hverju sinni. Sjóðnum er ætlað að ná til sprota- og nýsköpunarfyrirtækja, vísisjóða og annarra aðila, svo sem þeirra sem vinna að nýskapandi lausnum við samfélagslegum áskorunum, sjálfbærni og grænum umskiptum.