01 október 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Innlausnarmarkaður 2025 fyrir greiðslumark í sauðfé

{image.Description}
DL
Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár verður haldinn í nóvember. Innlausnarverð er núvirt andvirði beingreiðslna eins árs, kr. 5.610,- pr. ærgildi. Það greiðslumark sem er innleyst er jafnframt boðið til sölu á innlausnarverði.

Framleiðendur sem eiga 100 kindur eða fleiri og eru með ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra skulu hafa forgang að öllu greiðslumarki sem er í boði á markaði. Það skiptist hlutfallslega milli aðila sem hljóta forgang í samræmi við það magn sem þeir óskuðu eftir að kaupa.
Hver framleiðandi getur ekki óskað eftir ærgildum umfram þau sem tryggja honum óskertar beingreiðslur í samræmi við fjárfjölda og ásetningshlutfall. Framleiðandi í forgangshóp getur ekki fengið hærri úthlutun ærgilda en sem nemur því að ásetningshlutfall eftir úthlutun fari niður í 1,0. Það greiðslumark sem ekki er úthlutað til framleiðenda í forgangshópi skal boðið öðrum umsækjendum.

Með beiðni um innlausn á greiðslumarki skal fylgja veðbókarvottorð ásamt staðfestingu á eignarhaldi að lögbýli og samþykki ábúanda, sameigenda og veðhafa í lögbýlinu. Kaupandi greiðslumarks nýtir greiðslumark frá og með 1. janúar 2026.

Tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á afurd.is. Opnað hefur verið fyrir tilboð.

Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti 1. nóvember nk. Greiðslufrestur vegna kaupa á greiðslumarki er til 15. desember.