01 október 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Leiðtogar framtíðarinnar tókust á við ímyndaða áskorun á vettvangi Atlantshafsbandalagsins

{image.Description}
Það var alvörugefin stemmning í Smiðju Alþingis í gær er þátttakendur tókust á um úrlausn krísuástands.

Hátt í hundrað ungmenni, á aldrinum 18 til 35 ára, tóku þátt í svokallaðri Módel-NATO ráðstefnu, sem fram fór í Smiðju Alþingis í gær. Þar var starfsemi Atlantshafsbandalagsins, þ.e. fundur í Norður-Atlantshafsráðinu, endursköpuð þar sem þátttakendur tókust sameiginlega á við ímyndaða öryggisáskorun. 

Ráðstefnunni er ætlað að auka diplómatíska færni þátttakenda, sem læra auk þess samningatækni og ræða og taka ákvarðanir í alþjóðlegu samhengi. Þar var fengist við raunhæfa áskorun á sviði öryggis- og varnarmála, í þessu tilfelli hryðjuverkaárás innan íslenskrar lögsögu, þar sem þátttakendur nálguðust verkefnið í takt við stefnu og hagsmuni þess ríkis sem þeir voru fulltrúar fyrir.

„Á þessum víðsjárverðu tímum sem við lifum er gríðarlega mikilvægt að unga fólkið okkar láti sig öryggis- og varnarmál varða og þessi ráðstefna var kærkomið tækifæri fyrir þau til að dýpka skilning sinn og þekkingu á eðli og starfsemi Atlantshafsbandalagsins. Það er ekki alltaf hlaupið að því að ná samhljóma niðurstöðu í hópi 32 ólíkra ríkja, og því er stundum sagt að Norður-Atlantshafsráðið sé besti skólinn sem völ er á, þegar kemur að diplómasíu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Þetta var ótrúlega flottur og fjölbreyttur hópur sem tók þátt í þessu, og ég er fullviss um að þar leynast einstaklingar sem koma til með að gegna lykilhlutverki er kemur að hagsmunum Íslands á alþjóðavettvangi í framtíðinni.“

Módel-NATO ráðstefnan er einstakt tækifæri fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á, stunda nám eða starfa á sviði t.d. stjórnmála, alþjóðasamskipta, lögfræði, heimspeki, lögreglumála,  eða opinberrar þjónustu, til að taka þátt í skemmtilegri æfingu í ákvarðanatökuferlum Atlantshafsbandalagsins í neyðarástandi.

Utanríkisráðuneytið, ásamt breska sendiráðinu í Reykjavík og Alþingi stóðu fyrir viðburðinum í samvinnu við Skjöld-YATA og Varðberg.