02 október 2025

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 1/2025

{image.Description}
Eydís Eyjólfsdóttir

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald:

Fyrstu 10.000 km, kr. 144,0 pr. km
Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 130,0 pr. km
Umfram 20.000 km, kr. 115,0 pr. km

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. október 2025. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2023.