02 október 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Heilbrigðisráðuneytið

Gott að eldast á Akranesi: Móma-teymi stofnað

{image.Description}

Akraneskaupstaður hefur nú stigið mikilvægt skref í tengslum við Gott að eldast með stofnun svokallaðs Móma-teymis (móttöku- og matsteymis). Teymið mun fara yfir allar umsóknir sem berast um félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun. Í teyminu eiga sæti fulltrúar frá Akraneskaupstað, Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi (HVE) og hjúkrunarheimilinu Höfða. Með því er stigið skref í átt að samþættri og samfelldri þjónustu við eldra fólk.

„Með stofnun Móma-teymisins erum við að stíga raunhæft skref í átt að samþættingu þjónustu fyrir eldra fólk,“ segir Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs Akraneskaupstaðar. „Það er okkur mikilvægt að fólk upplifi að þjónustan sé samfelld, sveigjanleg og í takt við þarfir hvers og eins.“

Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir,forstjóri HVE, segir að samvinna við Akraneskaupstað og Höfða sé lykillinn að farsælli þróun þjónustunnar. „Með því að samþætta þjónustuna getum við tryggt að einstaklingar fái heildstæða og skilvirka þjónustu.“

Valdís Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Höfða, tekur í sama streng. „Við á Höfða leggjum mikla áherslu á að stuðla að heilbrigðri öldrun og góðum lífsgæðum. Þátttaka okkar í Móma-teyminu er liður í að styrkja tengsl milli stofnana og gera þjónustuna skilvirkari og manneskjulegri.“

Á myndinni eru (frá vinstri til hægri): – Laufey Jónsdóttir tengiráðgjafi Gott að eldast hjá SSV, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE, Kristín Björg Jónsdóttir forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu Akraneskaupstaðar, Hulda Gestsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á HVE, Ragnheiður Helgadóttir deildarstjóri heimahjúkrunar á HVE, Valdís Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Höfða, Líf Lárusdóttir verkefnastjóri Gott að eldast hjá SSV, Sveinborg L. Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna, Herdís Björnsdóttir sérfræðingur hjá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs Akraneskaupstaðar.