02 október 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Takmörkun á beitingu nauðungar – frumvarp til umsagnar
Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga. Með frumvarpinu er ætlunin að lögfesta meginregluna um bann við beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu og móta lagaramma um verklag þegar nauðsynlegt þykir að víkja frá meginreglunni. Einnig eru lögð til ný ákvæði sem skilgreina nauðung og fjarvöktun auk málsmeðferðarreglna sem fylgja þarf við og í kjölfar beitingar slíkra inngripa. Markmið frumvarpsins er að tryggja betur réttindi sjúklinga og er liður í viðbrögðum við athugasemdum umboðsmanns Alþingis og ítrekaðra tilmæla alþjóðlegra eftirlitsaðila um nauðsyn þess að settur verði skýr lagarammi um beitingu nauðungar.
Frumvarpið hefur áður verið lagt fram á Alþingi. Vegna athugasemda ýmissa hagsmunasamtaka sjúklinga um skort á samráði við gerð frumvarpsins ákvað ráðherra að afturkalla það og setja á fót samráðshóp til að fjalla um afstöðu notendahópa til beitingu nauðungar og áformaðar lagabreytingar. Samráðshópurinn var skipaður fulltrúum sem tilnefndir voru af Geðhjálp, Landssambandi eldri borgara, Hugarafli, Öryrkjabandalagi Íslands og Landssamtökunum Þroskahjálp auk tveggja fulltrúa heilbrigðisráðuneytisins sem skipaðir voru án tilnefningar. Frumvarpið hefur nú verið uppfært með hliðsjón af tillögum samráðshópsins.
Verði frumvarpið að lögum ber í heilbrigðisþjónustu að starfa samkvæmt þeirri meginreglu að beiting nauðungar sé óheimil nema brýna nauðsyn beri til og þá í samræmi við fyrirmæli laga. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir ákveðnum sérreglum sem varða sjúklinga sem eru börn undir 18 ára aldri, til að tryggja hagsmuni þeirra og réttindi.
Frestur til að skila inn umsögnum er til 24. október næstkomandi.