03 október 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Nýr leikskóli opnaður og heilsugæsla endurnýjuð í Síerra Leóne með stuðningi Íslands
Nýr leikskóli sem opnaður var í vikunni í sjávarþorpinu Konacrydee í Síerra Leóne markar tímamót í lífi íbúa á svæðinu. Leikskólinn er liður í stærra samstarfsverkefni Íslands, stjórnvalda í Síerra Leóne og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). Þá hefur heilsugæslustöð byggðarlagsins verið endurnýjuð og fengið lækningatæki og búnað til að bæta fæðingarþjónustu og mæðravernd.
Verkefnið með UNICEF hófst árið 2022 og það nær til sautján afskekktra fiskiþorpa í sex héruðum Síerra Leóne. Áhersla er á að reisa vatnsveitur og byggja upp hreinlætisaðstöðu við heilsugæslustöðvar, skóla og löndunarstaði í sjávarþorpunum. Gert er ráð fyrir að um 55 þúsund manns muni njóta góðs af verkefninu.
Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri, klippti á borða við opnun leikskólans að viðstöddum öllum samstarfsaðilum.
Sérstök áhersla á konur og börn í samfélaginu
Sérstök áhersla er lögð á að bæta aðstæður barna og kvenna í sjávarsamfélögunum með því að reisa níu leikskóla í öllum samstarfshéruðunum sem munu þjóna yfir þúsund börnum. Leikskólaganga barna stuðlar að markvissri skólasókn og leggur þannig grunn að velgengni síðar meir á lífsleiðinni.
Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, tók þátt í opnunarathöfninni í Konacrydee. Þegar hún klippti á borða leikskólans þakkaði hún UNICEF og stjórnvöldum sérstaklega fyrir samstarfið og minntist þess þegar hún tók fyrstu skóflustunguna fyrir rétt rúmu ári síðan.
„Þessi stund hefur mikla persónulega þýðingu fyrir mig eftir að mér hlotnaðist sá heiður að taka fyrstu skóflustunguna fyrir leikskólann. Ég man vel eftir þeim degi sem einkenndist af orku, bjartsýni og gleði. Það að snúa nú til baka og sjá leikskólann tilbúinn til þess að taka á móti nemendum fyllir mig gleði og stolti.“sagði Elín.
Fyrir utan að búa börnin betur undir skólagöngu, gefa leikskólarnir konum í þorpinu aukin tækifæri á að afla sér lífsviðurværis og taka þátt í samfélaginu, sér í lagi að sinna störfum tengt sjávarútvegi. Án leikskóla þurfa konurnar að vera heima með börnin yfir daginn eða taka þau með sér í vinnuna. Aðstæður eru þar óboðlegar ungum börnum og þau jafnvel útsett fyrir öndunarfærasjúkdómum vegna reyks úr ofnum sem notaðir eru í fiskvinnslu.
„Leikskólinn er ekki bara steypa og múrsteinar heldur skuldbinding okkar gagnvart börnunum í Konacrydee um að þau séu metin að verðleikum og að framtíð þeirra skipti máli,“ sagði Elín í ávarpi sínu.
Menntamálaráðherra landsins, Conrad Sackey Ibrahim, þakkaði Íslendingum fyrir stuðninginn og sagði að opnun leikskólans í Konacrydee gæfi sér von um betri framtíð fyrir öll börn í Síerra Leóne.
Ísland leggur mikla áherslu á stuðning við börn í Síerra Leóne, enda eru fyrstu ár ævinnar þau mikilvægustu fyrir þroska barna og gegna leikskólar þar mikilvægu hlutverki þar sem annars staðar.
Íslendingar gera endurbætur og gefa búnað á heilsugæslu
Nýi leikskólinn er ekki eina framfaraskrefið sem stigið var í Konacrydee í vikunni. Heilsugæslustöðin í byggðarlaginu hefur verið gerð upp með stuðningi íslenska ríkisins og er liður í verkefni Íslands með Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Það var hátíðleg stund þegar starfsfólki stöðvarinnar fékk afhentan mikilvægan búnað til að efla fæðingarþjónustu og mæðravernd. Um var að ræða vigt fyrir nýfædd börn, tæki til að mæla súrefnismettun í fæðingu, skoðnunarbekkir og fleira. Allt á þetta eftir að auka getu heilsugæslustöðvarinnar til að veita konum viðunandi þjónustu og aðstoð í fæðingum.
Íslensk stjórnvöld hafa tekið þátt í átaki um útrýmingu fæðingarfistils í landinu frá árinu 2021 í samstarfi við UNFPA og stjórnvöld í Síerra Leóne. Verkefnið miðar að því að taka á heildstæðan hátt á orsökum og afleiðingum fistils fyrir konur og stúlkur, m.a. með fyrirbyggjandi aðgerðum sem snúa að bættu kyn- og frjósemisheilbrigði. Síðan verkefnið hófst hafa yfir 36 þúsund stúlkur og konur fengið aðgang að bættri kyn- og frjósemisheilbrigðisþjónustu á fimmtán heilsugæslustöðvum í sex héruðum. Sambærileg verkefni eru unnin í samstarfi við UNFPA í Malaví og Úganda, hinum samstarfslöndum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu í Afríku.
Mikill fjöldi þorpsbúa mættu til að fagna bættri heilsugæslu. Stjórnvöld og fulltrúar UNFPA voru viðstödd, ásamt fulltrúum íslenskra stjórnvalda, og kynntu sér aðstæður heilsugæslunnar.
Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri, tók skúflustungu að leikskólanum í Konacrydee í maí 2024.
Leikskólabörn í Konacrydee
Mynd tekin úr endurnýjaðri heilsugæslu í Konacrydee