03 október 2025
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Nýtt lotunám fyrir innflytjendur strax við komu
Nýtt lotunám er hafið við fjölbrautarskólann í Ármúla fyrir innflytjendur sem eru nýkomnir til landsins. Megináherslan er á íslensku og fræðslu um íslenskt samfélag. „Með þessu viljum við hefja strax undirbúning fyrir inngöngu í íslenska skólakerfið sem getur reynst krefjandi á þessum aldri,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.
Á undanförnum árum hefur aukist þörf fyrir að skipuleggja betur og bjóða upp á fjölbreyttari leiðir í námi og kennslu nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn á framhaldsskólaaldri. Talsvert hefur fjölgað í þessum hópi meðal grunnskólanemenda en nú er tæpur þriðjungur allra nemenda á grunnskólaaldri með innflytjendabakgrunn. Þá hefur fjölgað hratt nemendum sem koma hingað undir lok grunnskóla eða á fyrstu árum framhaldsskóla og þónokkur fjöldi nemenda kemur til landsins utan hefðbundins innritunartíma í framhaldsskóla.
Staða þessara ungmenna er mjög ólík með tilliti til náms og reynslu. Dæmi eru um ungmenni með rofna skólagöngu auk þess sem þau glíma oft við afleiðingar áfalla og mikillar streitu en það á sérstaklega við um þau sem hafa verið lengi á flótta. Einnig eru dæmi um nemendur sem eru sterkir námslega þrátt fyrir að vera byrjendur í íslensku. Ef vel er staðið að móttöku þessara ungmenna, námslega og félagslega er líklegra að þeim gangi betur að fóta sig í áframhaldandi námi og skapist fyrr tækifæri til þátttöku í samfélaginu.
Fyrirkomulagið á lotunáminu er með þeim hætti að kennt verður í tveimur sex vikna lotum fyrir áramót og öðrum tveimur lotum eftir áramót. Þetta felur í sér að nýkomnir nemendur sem eru byrjendur í íslensku hafa tök á að innritast mjög fljótlega eftir komuna til landsins og hefja undirbúning að frekara námi.
Lotunámið hófst 8. september síðastliðinn og voru 7 nemendur skráðir í fyrstu lotuna en óljóst er hversu margir nemendur muni þurfa á náminu að halda þar sem þeir geta komið til landsins á ólíkum tímum. Nemendurnir sem þegar eru byrjaðir munu síðan halda áfram í vetur. Byrjað er á móttökuviðtali og mati á stöðu nemenda og námið lagað að stöðu þeirra og hæfni. Lögð er sérstök áhersla á kennslu íslensku sem annars tungumáls og fræðslu um íslenskt samfélag. Þeir nemendur sem kjósa og hafa tök á geta tekið áfanga í listnámi og einnig tölvum og stærðfræði. Þeir nemendur sem hófu nám í haust eru einstaklega áhugasamir um námið og mæta vel. Við þróun námsins er byggt á reynslu skólans og annarra framhaldsskóla og mun Framhaldsskólateymi á vegum MEMM verkefnisins vera kennurum og starfsfólki til ráðgjafar og stuðnings.