06 október 2025

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mælti fyrir frumvarpi um kílómetragjald

{image.Description}
Hari

Fjármála- og efnahagsráðherra, mælti í dag á Alþingi fyrir frumvarpi til laga um kílómetragjald á ökutæki. Með frumvarpinu er lagt til að greitt verði kílómetragjald í stað olíu- og bensíngjalda. Kílómetragjald var tekið upp fyrir rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla árið 2024 og miðar frumvarpið við að það verði tekið upp fyrir öll ökutæki árið 2026.

Kílómetragjald er gjald sem er greitt fyrir hvern ekinn kílómetra og kemur í stað olíu- og bensíngjalda sem falla niður. Frumvarpið miðar við að kostnaður vegna aksturs meðalbensínbíls verði óbreyttur en á sama tíma verður áfram hagstæðara að aka um á vistvænum bílum.

Á upplýsingasíðunni Vegir okkar allra er að finna allar helstu upplýsingar um tilefni kerfisbreytingarinnar, hvaða áhrif hún hefur auk svara við öllum helstu spurningum.

Sjá nánar:
- www.vegirokkarallra.is
- Kílómetragjald á ökutæki - Ferill máls á Alþingi