06 október 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Atvinnuvegaráðuneytið
Milljarður frá ESB í endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi
Fimm ríkisstofnanir taka nú þátt í nýju Evrópuverkefni, Peatland LIFEline.is, sem er því eitt umfangsmesta verkefni sinnar tegundar sem ráðist hefur verið í hér á landi. Peatland LIFEline.is. miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi og nemur heildarkostnaður vegna þess rúmlega 8 milljónum evra. LIFE-sjóður Evrópusambandsins leggur til 75% fjárhæðarinnar.
Verkefnið er unnið í víðtæku samstarfi sjö aðila: Landbúnaðarháskóla Íslands, Land og skógar, Náttúrufræðistofnunar, Hafrannsóknastofnunar, Náttúruverndarstofnunar, Fuglaverndar og bresku fuglaverndarsamtakanna Royal Society for the Protection of Birds. Verkefnið er leitt af Landbúnaðarháskóla Íslands.
Endurheimt votlendis og vistkerfa er eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Auk þess að draga úr losun og auka bindingu þá eykur endurheimt vistkerfa seiglu gegn náttúruvá, bæði með bættri vatnsmiðlun og styrkingu vistkerfa, auk þess að vera lykilaðgerð fyrir vernd líffræðilegrar fjölbreytni sem er áherslumál í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar.
Í Peatland LIFEline.is er lögð áhersla á að auka þekkingu og skilning á votlendi á láglendi Íslands, vistfræði þess, líffræðilegri fjölbreytni og losun og bindingu gróðurhúsalofttegunda. Sérstaklega er horft til vistgerðarinnar starungsmýravistar sem hefur mjög hátt verndargildi og fuglategundanna jaðrakans, stelks og lóuþræls sem teljast lykilvísar um heilbrigði votlendis.
Votlendi á Íslandi er um margt sérstakt í samanburði við votlendi annars staðar í Evrópu, meðal annars vegna ungs berggrunns, áfoks og áhrifa eldvirkni. Það gegnir lykilhlutverki fyrir fuglalíf og stofnar nokkurra tegunda byggja afkomu sína að verulegu leyti á þessum svæðum. Verkefninu er ætlað að styrkja yfirsýn og auka þekkingu á votlendissvæðum landsins, ástandi þeirra og helstu áskorunum við endurheimt. Jafnframt er lögð áhersla á samfélagslega þátttöku og miðlun þekkingar.
„Þetta eru frábær tíðindi og afraksturinn af góðri vinnu fagstofnana og félagasamtaka þvert á stjórnkerfið og þvert á landamæri. Styrkveitingin mun styðja kröftuglega við stefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um eflingu líffræðilegrar fjölbreytni og samdrátt í losun frá landi,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Það er fagnaðarefni að lykilstofunun á borð við Hafrannsóknastofnun komi að jafn brýnu, metnaðarfullu og vel fjármögnuðu verkefni“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. „Líffræðileg fjölbreytni er áherslumál ríkisstjórnarinnar, ekki síst í hafi þar sem íslenskt þjóðarbú á mikilla hagsmuna að gæta.“
„Verkefnið er afar mikilvægt fyrir Landbúnaðarháskóla Íslands og styrkir hlutverk skólans sem leiðandi afl í rannsóknum, fræðslu og endurheimt vistkerfa á Íslandi og skapar ný tækifæri til þekkingarsköpunar og sameiginlegra verkefna á evrópskum vettvangi. Í tengslum við verkefnið er ráðgert að byggja stíga og aðstöðu til fuglaskoðunar á RAMSAR-svæðinu Andakíl á Hvanneyri, m.a. með því að umbreyta sögulegri hlöðu Halldórsfjóss í fræðslu- og gestamiðstöð og tengja saman menningararf, sjálfbæra nýtingu og vísindalega nýsköpun og samhliða því að efla kennslu og samfélagslegt hlutverk skólans á sviði umhverfisstjórnunar og sjálfbærrar þróunar,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra.
Peatland LIFEline.is hófst formlega í byrjun september á þessu ári og mun standa yfir til loka febrúar 2031.