07 október 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Birtuorka í Borgartúni
Nýlega var gangsett birtuorkuver á þaki Borgartúns 26. Birtuorkukerfið samanstendur af 55 birtusellum eða sólarsellum sem áætlað er að muni framleiða um 18-20.000 kWst árlega sem samsvarar rafmagnsnotkun 4-5 meðalheimila á Íslandi. Kerfið hefur nú þegar framleitt tæpar 5.000 kWst síðustu vikur en rafmagnið er nýtt til þess að draga úr rafmagnsnotkun hússins og rafmagnskostnaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins sem staðsett í húsinu, auk þess að létta álagi af raforkukerfinu
Að verkefninu standa umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Eik fasteignafélag og Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir. Framkvæmd verkefnisins var í höndum fyrirtækisins Alor sem vinnur að verkefnum á sviði orkutengdrar nýsköpunar á Íslandi.
Samhliða birtusellunum hefur verið innleidd 50 kWst rafhlaða á þakinu sem mun virka sem varaafl fyrir hluta hússins í rafmagnstruflunum. Kerfið er tengt við raforkukerfið og spilar sjálfkrafa saman við það og er rafmagn þannig keypt eftir þörfum þegar birtuorku nýtur ekki við.
„Forveri minn í embætti ýtti þessu verkefni úr vör í samstarfi við Eik fasteignafélag, Framkvæmdasýsluna/Ríkiseignir og Alor. Sólarorka er um þessar mundir að umbreyta orkubúskap heimsins og mikilvægt að við hér á Íslandi séum vakandi fyrir þróuninni og tökum þátt í henni,” segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Framleiðsla birtuorku hefur aukist mikið síðustu ár og annar nú 7% af heildar raforkunotkun heimsins. Hin Norðurlöndin hafa stigið stór skref m.a. í N-Noregi þar sem birtuskilyrði eru svipuð og á Íslandi.
„Við erum afar ánægð með að hafa tekið þátt í að sameina krafta opinberra aðila, einkaaðila og nýsköpunar í einu og sama verkefninu. Það liggur á að koma nýju rafmagni inn á kerfið og við erum þegar að gera með skjótum hætti með því að nýta háþróaða tækni í bland við eigin nýsköpun”, segir Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra og meðstofnandi Alor.
„Við hjá Eik fasteignafélagi erum stolt af því að vera fyrsta fasteignafélagið til þess að framleiða eigið rafmagn. Við vinnum stöðugt að því að gera rekstur fasteigna félagsins sjálfbærari og nýja birtuorkuverið í Borgartúni 26 er mikilvæg varða á þeirri leið. Það verður fróðlegt að fylgjast með tæknilegri getu og afköstum kerfisins við íslenskar aðstæður. Við þurfum að nýta orkuna okkar vel og fjölbreyttari orkuöflun í mannvirkjum bíður upp á mörg tækifæri,“ segir Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar fasteignafélags.
„Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir reka stærsta fasteignasafn landsins og það liggja mikil tækifæri í að draga úr rafmagnsnotkun fasteignanna og verða sjálfbærari um rafmagnsframleiðslu. Þannig getum við lækkað kostnað og létt álagi af raforkukerfinu”, segir Óskar Jósefsson, forstjóri Framkvæmdasýslu – Ríkiseigna.