08 október 2025

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Opið fyrir tilnefningar: Hver verður næsti Ari Eldjárn?

{image.Description}
Ari Eldjárn ásamt foreldrum sínum Unni Ólafsdóttur og Þórarni Eldjárn á degi íslenskrar tungu. Rithöfundurinn Þórarinn Eldjárn faðir Ara hlaut sömu verðlaun árið 1998.

Dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 16. nóvember í 30. sinn. Markmiðið með deginum er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og fagna sögu hennar í samtíð og framtíð!

Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Þann dag eru árlega veitt verðlaun og viðurkenning fyrir störf í þágu íslenskrar tungu og efnt til margvíslegra menningarviðburða. Í aðdraganda dagsins kemur vika íslenskunnar og þá er almenningur og fyrirtæki, skólar og aðrar stofnanir, hvött til að gera íslenskri tungu hátt undir höfði.

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar eru veitt 16. nóvember, á afmælisdegi skáldsins. Þau eru veitt einstaklingi sem hefur með eftirtektarverðum hætti unnið íslenskri tungu gagn eða glætt hana nýju lífi, til dæmis með skáldskap, fræðistörfum, kennslu, þýðingum eða á annan hátt stuðlað að framgangi íslenskunnar, eflingu hennar, miðlun eða nýsköpun. Á síðasta ári hlaut Ari Eldjárn verðlaunin fyrir framlag sitt til íslenskrar uppistandsmenningar og fyrir að skemmta ungum sem öldnum á íslenskri tungu. Við sama tækifæri er veitt viðurkenning íslenskrar tungu. Hana skal veita hópi, félagi, verkefni, samtökum, fyrirtækjum eða stofnunum sem hafa á einn eða annan hátt sýnt íslenskri tungu ræktarsemi, vakið athygli á henni eða sýnt henni stuðning í verki. Á síðasta ári hlaut verkefnið Kveikjum neistann viðurkenninguna fyrir að styðja við íslenska tungu gegnum lestur ungmenna í skólum.

Veist þú um einstakling eða hóp sem hefur veitt íslenskri tungu sérstakt lið að undanförnu?

Menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra, Logi Einarsson veitir verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og viðurkenningu íslenskrar tungu 16. nóvember næstkomandi og nýtur við það verkefni stuðnings sérstakrar ráðgjafarnefndar. Nefndin vinnur tillögur sínar til ráðherra meðal annars upp úr ábendingum sem almenningur getur sent inn. Hægt er að koma ábendingum á framfæri hér. Síðasti dagur til að skila inn ábendingum er 25. október n.k.  

Hér má sjá hverjir hafa fengið verðlaun eða viðurkenningu á umliðnum árum.