09 október 2025
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Drög að frumvarpi um breytingu á búvörulögum kynnt í Samráðsgátt
Að styrkja stöðu bænda og efla verðmætasköpun í landbúnaði eru á meðal markmiða frumvarpsdraga um breytingu á búvörulögum sem hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Markmið frumvarpsins eru einnig eftirfarandi:
- Bændum og fyrirtækjum undir þeirra yfirráðum verði tryggt sambærilegt svigrúm til samstarfs og hagræðingar líkt og í nágrannalöndum í samræmi við gildandi landbúnaðarstefnu.
- Gert er ráð fyrir að drögin hafi ekki áhrif á núverandi samstarf um söfnun mjólkur og söluskyldu mjólkur til annarra vinnsluaðila sbr. 13. gr. búvörulaga.
- Lögfest verði söfnunarskylda hjá afurðastöðvum með verulega markaðshlutdeild til að auðvelda búvöruframleiðslu um land allt.
- Hámarksgjald verði sett á heimteknar afurðir til að styðja við frekari vinnslu og verðmætasköpun bænda.
- Afurðastöðvar undir beinum yfirráðum bænda geti gert með sér samkomulag um verkaskiptingu og áframhaldandi samstarf.
Frumvarpsdrögin fela í sér almenna heimild til samstarfs bænda og fyrirtækja þeirra á búvörumarkaði, óháð búgreinum. Drögin gera jafnframt ráð fyrir að 71. gr. og 71.gr. A búvörulaga falli brott. Samkvæmt því munu fyrirtæki í mjólkuriðnaði sem eru undir yfirráðum bænda áfram geta starfað saman og samið um verkaskiptingu en almenn samkeppnislög gildi um önnur fyrirtæki. Á þeim tíma sem liðinn er síðan 71. gr var lögfest hefur orðið mikil hagræðing í mjólkuriðnaði. Nú starfa tvö mjólkursamlög í landinu en til samanburðar voru þau 15 árið 1993. Aðstæður á markaði hafa þannig breyst til muna og segja má að markmið fyrrnefndrar greinar hafi náðst.
Ekki er gert ráð fyrir að samrunar sem þegar hafa átt sér stað verði fyrir áhrifum samkvæmt frumvarpsdrögum en framvegis munu samrunareglur samkeppnislaga gilda eins og í öðrum atvinnugreinum. Fyrirtæki á búvörumarkaði sem bændur ráða ekki yfir munu skv. drögunum starfa eftir almennum reglum samkeppnislaga líkt og önnur fyrirtæki í landinu.
Til að tryggja jöfn tækifæri í landbúnaði um land allt er lagt til að afurðastöðvum með yfir 40% markaðshlutdeild verði skylt að safna afurðum frá bændum hvar sem þeir starfa. Þá verði hámarksgjald sett á afurðir sem bændur taka heim til eigin vinnslu, þannig að þeir eigi auðveldara með að auka verðmæti framleiðslu sinnar.
Samráð stendur yfir til og með 17. október í samráðsgátt stjórnvalda og eru öll hvött til að senda inn umsagnir.