09 október 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ráðherra skipar Sigurbjörgu Fjölnisdóttur í embætti forstjóra Ráðgjafar- og greiningarstöðvar

{image.Description}

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Sigurbjörgu Fjölnisdóttur í embætti forstjóra Ráðgjafar- og greiningarstöðvar til fimm ára frá 1. desember næstkomandi.

Sigurbjörg hefur starfað sem sviðsstjóri velferðarsviðs hjá Mosfellsbæ frá árinu 2020 en hún hefur einnig starfað bæði sem deildarstjóri stuðningsþjónustu og forstöðumaður hjá Reykjavíkurborg auk annarra starfa.

Sigurbjörg er með Cand.Psych. gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla. Hún lauk grunnnámi í sálfræði.

Alls sóttu sex um embættið.