10 október 2025

/

Heilbrigðisráðuneytið

Embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu laust til umsóknar

{image.Description}
Mynd: Bent Marinósson
Frá nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisráðuneytis og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins í Grósku 1. október

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstöðumanns nýrrar einingar sem bera mun nafnið Stafræn heilsa - þróunar- og þjónustumiðstöð. Einingin verður hluti af heilbrigðisráðuneytinu og heyra undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni í heilbrigðisþjónustu og tryggja yfirsýn. Einnig að styðja við nýsköpun og þar með aðkomu einkaaðila. Til að byrja með munu verkefni Stafrænnar heilsu lúta að innviðum sjúkraskráa, upplýsingaöryggi, stöðlum og nýsköpun. Auglýsing um embættið hefur verið birt á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til 27. október næstkomandi.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra kynnti ákvörðun um stofnun Stafrænnar heilsu – þróunar- og þjónustumiðstöðvar, á nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisráðuneytisins og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins sem haldin var í Grósku 1. október síðastliðinn. Stafræn heilsa tekur til starfa í byrjun næsta árs og er stofnun hennar liður í markvissri eflingu innviða og skýrari stjórnunar á stafrænum lausnum í heilbrigðiskerfinu. Heilbrigðisráðuneytið réðist fyrr á þessu ári í ítarlega greiningu á stöðu stafrænna lausna í heilbrigðisþjónustu á Íslandi í samvinnu við fjölmarga aðila, stofnanir og aðra haghafa. Niðurstöður þeirrar greiningar voru birtar í september síðastliðnum þar sem settar eru fram tillögur sem miða að skýrari forgangsröðun og samfellu í þjónustu, auknu aðgengi að gögnum og sameiginlegum innviðum sem tryggja skilvirkan og öruggan rekstur. Ein tillagnanna var um að setja á fót sameinaða þróunareiningu stafrænna lausna, enda væri það lykillinn að því að hrinda í framkvæmd þeim úrbótum sem mikilvægt er að ráðast í samkvæmt greiningunni.