10 október 2025

/

Heilbrigðisráðuneytið

Opnað fyrir umsóknir um styrki úr lýðheilsjóði

{image.Description}
Leikskólabörn

Embætti landlæknis hefur opnað fyrir umsóknir um styrki úr lýðheilsusjóði. Lögbundið hlutverk sjóðsins er að styrkja lýðheilsustarf og stuðla að heilsueflingu og forvörnum. Að þessu sinni er sjónum beint að lýðheilsuáskorunum sem tengjast andlegri líðan barna og ungmenna. Umsóknarfrestur er til 30. október næstkomandi.

Lýðheilsusjóður starfar samkvæmt reglugerð um lýðheilsusjóð. Þriggja manna stjórn sem heilbrigðisráðherra skipar fer með stjórn sjóðsins en embætti landlæknis annast daglega umsýslu hans. Ráðherra ráðstafar fé úr sjóðnum að fengnum tillögum stjórnar.