13 október 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Föstudagspóstur 10. október 2025
Heil og sæl.
Við hefjum yfirferðina á dagskrá utanríkisráðherra en hún tók þátt í tveggja daga opinberri heimsókn forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, til Finnlands, dagana 7. og 8. október. Þar fundaði utanríkisráðherra með finnskum ráðherrum utanríkismála og varnarmála og undirritaði tvíhliða samstarfsyfirlýsingu um varnarmál. Yfirlýsingin undirstrikar vilja ríkjanna tveggja til að styrkja frekar samvinnu sína á sviði varnarmála, ekki síst í ljósi verulegra breytinga á öryggislandslagi Evrópu.
Íslensk viðskiptanefnd sem samanstóð af um 50 fulltrúum frá 30 fyrirtækjum og stofnunum fór með til Helsinki með það að markmiði að efla tengsl við finnsk fyrirtæki og kynna íslenskt hugvit og fjölbreyttar lausnir á sviði nýsköpunar, tækni og sjálfbærra verkefna. Viðskiptaþing var haldið í Helsinki sem Íslandsstofa, Samtök iðnaðarins, Samorka og Business Finland skipulögðu.
Forseti Finnlands, Alexander Stubb, bauð íslensku sendinefndinni, utanríkisráðherra, forseta Íslands og maka síðan í hátíðarkvöldverð.
Thank you @elinavaltonen for an excellent meeting in Helsinki yesterday on a number of important topics for both 🇮🇸 and 🇫🇮. https://t.co/1SiEm7NPby
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) October 9, 2025
Utanríkisráðherra Palestínu í heimsókn á Íslandi í boði utanríkisráðherra Íslands.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti tvíhliðafund með utanríkisráðherra Palestínu, Dr. Varsen Aghabekian, sem var stödd á Íslandi í boði utanríkisráðherra. Ráðherrarnir ræddu stöðuna í Palestínu og fréttir um að samningar hefðu tekist um vopnahlé á Gaza auk nýlegar viðurkenningar fjölda ríkja á sjálfstæði Palestínu.
Dr. Aghabekian ávarpaði einnig friðarráðstefnuna Imagine Forum sem Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytið og Höfði friðarsetur stóðu að.
Pleased to receive @varsenaghshahin, Foreign Minister of @pmofa 🇵🇸 in Reykjavík 🇮🇸 on a day that can hopefully herald a new beginning. Much remains to be done for a permanent peace but the news of a ceasefire deal in Gaza is so very welcome. pic.twitter.com/26YJfw9lZc
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) October 9, 2025
My first visit to #Iceland🇮🇸 had pleasure of meeting PM @KristrunFrosta & FM @thorgkatrin. Discussed strengthening 🇵🇸🇮🇸 relations & Iceland’s continued support for our just cause as well as the importance of aligning int. efforts with #internationallaw & unity of Palestinian land https://t.co/yphfbW5JEm
— Varsen Aghabekian Shahin (@VarsenAghShahin) October 12, 2025
Grateful for the chance to meet with human rights activists @nazaninboniadi, who advocates on behalf of women in Iran, and Russian dissident and writer @vkaramurza who both addressed #ImagineForum2025 today 🙏🏼 pic.twitter.com/qgPHwmEddm
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) October 10, 2025
Vindum okkur nú út í heim og skoðum allt það sem okkar góða fólk í sendiskrifstofum Íslands hefur verið að bralla undanfarna daga.
Líkt og vanalega var íslensk menning í hávegum höfð hjá sendiskrifstofum okkar.
Sendiherra okkar í Washington, Svanhildur Hólm Gunnarsdóttir, tók þátt í pallborðsumræðum í tengslum við sýningu heimildamyndarinnar „The Day Iceland Stood Still" um kvennaverkfallið 1975.
This week @PressClubDC screened the documentary "The Day Iceland Stood Still," about the day that sparked a revolution in gender equality that changed Iceland forever. followed by QnA with filmmakers Pamela Hogan, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Gríma Irmudóttir and 🇮🇸Amb. Valsdóttir pic.twitter.com/HatYrSyFoI
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) October 10, 2025
Sendiherra okkar í London, Sturla Sigurjónsson, bauð til móttöku í embættisbústaðnum í tilefni útgáfu nýrrar bókar myndhöggvarans Steinunnar Þórarinsdóttur.
Sendiherra okkar í Ósló bauð einnig í bókakynningu og móttöku í embættisbústaðnum þar sem ljóðabókin „Til hamingju með að vera mannleg" eftir Siggu Soffíu var kynnt í norskri þýðingu. Þar að auki bauð sendiráðið í Ósló til fundar með menningar- og viðskiptafulltrúum sendiráðsins auk fulltrúum Íslendingafélagsins í Ósló, íslensku kirkjunnar í Noregi og norsk-íslenska viðskiptaráðsins.
Íslenskir kennarar og nemendur voru á ferð og flugi í vikunni og héldu starfsfólki okkar uppteknu.
Í Berlín tók sendiráðið okkar á móti hóp nemenda Kvennaskólans í Reykjavík.
Í Varsjá tók Friðrik Jónsson, sendiherra, þátt í opnun háskólaverkefnisins „ReyVarstígur", en þetta samstarfsverkefni milli Háskóla Íslands og Háskólans í Varsjá snýr að tungumálakennslu og pólskum fræðum.
Aðalræðismaðurinn okkar í Færeyjum, Hannes Heimisson, tók einnig á móti nemendum og kennara í íslensku og málvísindum við Háskóla Íslands sem stödd voru í Þórshöfn í námsferð í sambandi við áfangann „Færeyska og íslenska".
60. lota mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna lauk í vikunni. Mannréttindaráðið afgreiddi 37 ályktanir á haustlotunni, en þetta var þriðja fundarlota Íslands í mannréttindaráðinu frá því að Ísland hlaut kosningu í ráðið. Af 37 ályktunum voru 30 samþykktar samhljóða, en atkvæði greidd um sjö þeirra. Fastanefnd Íslands beitti sér sérstaklega í samningaviðræðum um ályktanir sem tengdust áherslumálum Íslands t.a.m baráttu gegn dauðarefsingum, leiðir til að sporna við mæðradauða og um áhrif hækkandi sjávarmáls á mannréttindi. Ísland studdi einnig ályktanir um stöðu mannréttindamála í ákveðnum ríkjum líkt og Afganistan, Súdan og Rússlandi. Einnig var ályktun um mannréttindi í Afganistan samþykkt samhljóða, en hún stofnar óháða rannsóknarnefnd um mannréttindabrot þar í landi - eitthvað sem Ísland hefur lengi kallað eftir.
As #HRC60 is coming to an end after weeks of negotiations – it is time to vote! As 37 resolutions are adopted, 🇮🇸 priorities include advancing #GenderEquality and accountability for serious crimes in #Afghanistan.
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) October 6, 2025
See live at UN Web TV 👉https://t.co/7jCk3YZZpV pic.twitter.com/KFr016hDXR
🇮🇸 at #HRC60: Human rights must remain at the heart of our collective efforts. @ohchr's technical cooperation and capacity-building are key to turning principles into lived realities. Full statement👉https://t.co/R6CtEy9yIP pic.twitter.com/U1vW77kRtP
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) October 6, 2025
Fastafulltrúi okkar/sendiherra gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York, Anna Jóhannsdóttir, lagði áherslu á mannréttindi, jafnrétti kynjanna, valdeflingu kvenna og stúlkna, og samstöðu Íslands með hinsegin fólki í ræðum sínum á nefndarfundum í vikunni.
Transgender individuals, especially trans-women, have increasingly become the target of hate.#TransRightsAreHumanRights
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) October 8, 2025
🇮🇸 will not shy away from standing up on their behalf, and for the principle that we are all born free and equal.
🔗 https://t.co/WHvZG7iZXv pic.twitter.com/MZr9jeGevg
In today's general debate of #2C, 🇮🇸PR @annajohannsd emphasized that human rights, gender equality and empowerment of all women & girls are essential preconditions for achieving the SDGs & thus a central concern for the work of the 2nd Committee #UNGA80
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) October 7, 2025
➡️https://t.co/e1FzWHNWHI pic.twitter.com/JkY77PML1C
Ísland tekur nú þátt í sinni síðustu fundalotu framkvæmdastjórnar UNESCO í París en þar höfum við átt sæti síðan 2021. Auðbjörg Halldórsdóttir fastafulltrúi flutti stefnuræðu Íslands þar sem lögð var áhersla á mannréttindi, jafnrétti kynjanna, réttindi hinsegin fólks, aðgengi afganskra kvenna og stúlkna að menntun, aðgerðir stofnunarinnar í Úkraínu og Gaza og forgangsröðun fjármála og verkefna stofnunarinnar.
At the opening of the 222nd Executive Board of UNESCO, Permanent Delegate of #Iceland 🇮🇸 @AudbjorgH emphasized:
— L’Islande à Paris 🇮🇸 (@IcelandinParis) October 10, 2025
- Human rights & gender equality
- Rights of Afghan women & girls
- Emergency programmes in Gaza & Ukraine
- A UNESCO fit for the future
🔗https://t.co/JNrDQhjTqJ pic.twitter.com/xdQ21ZjrAl
Benedikt Höskuldsson, sendiherra okkar í Nýju Delí, tók þátt í viðskiptaráðstefnu Tamil Nadu hérðasins og EFTA þar sem hann hélt ræðu, m.a. um nýjan fríverslunarsamning milli EFTA og Indlands.
On Oct 8, Amb. Benedikt Höskuldsson joined Hon. Minister Dr @TRBRajaa at the Tamil Nadu–EFTA Business Summit, organised by @SICCI_India & @Guidance_TN.
— Iceland in India (@IcelandinIndia) October 10, 2025
Tamil Nadu stands out as one of India’s most dynamic and industrially advanced states — a natural partner for EFTA states. 🇮🇸🇮🇳 pic.twitter.com/YtJWg5IYz0
Tinna Sveinsdóttir, varamaður sendiherra í Nýju Delí, hitti íslenska keppendur á heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum.
DCM Tinna Sveinsdóttir attended the World Para Athletics Championships to support Team Iceland.
— Iceland in India (@IcelandinIndia) October 6, 2025
Congratulations to Stefanía Daney Guðmundsdóttir (long jump) and Ingeborg Eide Garðarsdóttir, who set a new 🇮🇸 record in shot put (10.08m, F37).
True inspiration! 🌟 pic.twitter.com/KJ9XRCj95b
Íslenska liðið í norrænu krikket keppninni árið 2025 í Nýju Delí hafnaði í þriðja sæti.
Sendiráðið okkar í París tók á móti starfsfólki Persónuverndar sem heimsótti París í vikunni og kynnti sér franskar systurstofnanir. Í sendiráðinu hlaut starfsfólkið kynningu á starfsemi sendiráðisins og fastanefnda okkar í París.
Síðast en ekki síst þá tók Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, þátt í umræðum á vegum UNFPA um hvernig sé hægt að tækla skaðleg samfélagsnorm í Síerra Leóne en málefnið er tengt þróunarsamvinnuverkefni Íslands og UNFPA þar í landi.