13 október 2025

/

Dómsmálaráðuneytið

Nýtt komu- og brottfararkerfi tryggir öryggi á landamærum

{image.Description}
Hari

Í gær hófst innleiðing á nýju komu- og brottfararkerfi Schengen-svæðisins (Entry/Exit System – EES). Innleiðing kerfisins fer fram samtímis í öllum Schengen-ríkjum, að Kýpur undanskildu, og er gert ráð fyrir að það verði að fullu tekið í notkun á öllum ytri landamærum Schengen-ríkjanna í lok mars 2026.

„Innleiðing nýja landamærakerfisins er stórt skref í átt að öruggari  landamærum“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. „Þetta er liður í sameiginlegri stefnu Evrópuríkja um að efla öryggi og koma í veg fyrir að þeir sem ekki eiga erindi inn á svæðið komist inn í landið.“


Markmiðið er að auka öryggi og bæta skilvirkni í landamæraeftirliti með samræmdri skráningu á för fólks yfir landamæri. Með komu- og brottfararkerfinu verður unnt að fá betri yfirsýn yfir dvöl einstaklinga frá ríkjum utan Schengen-svæðisins, draga úr misnotkun á dvalarheimildum og auðvelda framkvæmd frávísana og brottvísana.


Engin áhrif á ferðafrelsi innan Schengen


Innleiðing kerfisins hefur engin áhrif á ferðafrelsi Íslendinga og annarra ríkisborgara Schengen-ríkjanna, né þeirra sem hafa heimild til lengri dvalar innan svæðisins. Markmiðið er að tryggja örugga og skilvirka för fólks án þess að skerða réttindi þeirra sem ferðast löglega innan svæðisins.


Aukið öryggi og skilvirkara eftirlit


Með innleiðingu komu- og brottfararkerfisins tekur Ísland þátt í sameiginlegu átaki aðildarríkja Schengen til að tryggja örugg, skilvirk og samræmd landamæri til framtíðar. Kerfið mun styðja við alþjóðlegt lögreglusamstarf og bæta forvarnir gegn ólöglegri dvöl, skipulagðri brotastarfsemi og öðrum öryggisógnum sem kunna að tengjast ferðalögum milli ríkja.


Komu- og brottfararkerfið er hluti af stærra heildarumhverfi snjallra landamæralausna sem stuðla að auknu öryggi í Evrópu og styrkja alþjóðlegt lögreglusamstarf í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi, mansali, vopnasmygli og hryðjuverkum.


Ísland tekur virkan þátt í samstarfi við erlendar löggæslustofnanir og Landamærastofnun Evrópu (Frontex). Með innleiðingu nýrra landamærakerfa mun þetta samstarf styrkjast enn frekar með aukinni upplýsingamiðlun og styttri boðleiðum, þvert á landamæri.


Innleiðing í áföngum


Undirbúningur að innleiðingu komu- og brottfararkerfisins á öllu Schengen-svæðinu hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Þar sem nokkur aðildarríki voru ekki tilbúin til að hefja fulla notkun kerfisins, var ákveðið á vettvangi Evrópusambandsins að taka það í notkun í áföngum frá og með 12. október 2025.


Kerfið verður að fullu tekið í notkun á öllum ytri landamærum í mars 2026.


Reglugerðir tengdar nýju kerfi hafa verið birtar í Stjórnartíðindum.