13 október 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samráðsferli um eflingu framhaldsskóla hafið

{image.Description}
Guðmundur Ingi Kristinsson kynnir hugmyndir sínar um sameiginlega stjórnsýslu í framhaldsskólum í Menntaskóla Reykjavíkur

Mennta- og barnamálaráðuneytið boðaði nýverið samráð um nýtt skipulag fyrir opinbera framhaldsskóla. Markmið breytinganna er að styrkja framhaldsskólastigið, efla starf skólanna og þjónustu við nemendur.

Samráðsferlið hófst með stórum vinnufundi með öllum skólameisturum í lok september, þar sem farið var yfir stjórnsýslulegt hlutverk fyrirhugaðra svæðisskrifstofa auk þess sem samspil ráðuneytisins, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og framhaldsskólanna var skoðað sérstaklega í breyttu skipulagi. Einnig voru umræður um hvaða þjónustu svæðisskrifstofur eigi að veita nemendum, starfsfólki og stjórnendum framhaldsskólanna til að markmið um öflugra framhaldsskólastig náist.

Heimsóknir í alla opinberu framhaldsskólana

Einn mikilvægasti hluti samráðsferilsins felst í heimsóknum mennta- og barnamálaráðherra Guðmundar Inga Kristinssonar í alla opinberu framhaldsskólana sem eru 27 talsins. Heimsóknirnar hófust í síðustu viku og nú þegar hefur ráðherra heimsótt sex skóla.  Í heimsóknunum á ráðherra milliliðalaust samtal við kennara, annað starfsfólk skólanna og í sumum tilfellum nemendur skólanna.

Á fundum ráðherra með kennurum og starfsfólki þessara sex skóla hafa komið fjölmargar góðar ábendingar sem lofa góðu um framhaldið.  Samstaða er um að þörf sé á auknum stuðningi við starfsemi framhaldsskólanna og ekki síst við nemendur. Meðal þess sem fram hefur komið er:

  • Að æskilegt sé að færa tiltekna þjónustu og ráðgjöf við framhaldsskóla frá ráðuneytinu til annars aðila. Þannig sé þörf á að aðgreina stefnumótunar-, eftirlits- og úrskurðarhlutverk ráðuneytisins frá þjónustu og ráðgjöf við rekstur og stjórnsýslu skólanna. 
  • Mikilvægt sé að skýra ábyrgð skólameistara og hlutverk í nýju stjórnskipulagi og að ekki sé æskilegt að færa daglegar stjórnunarheimildir frá skólameisturum, svo sem vegna reksturs og ráðninga.

Ráðherra hefur þegar ákveðið að skólarnir muni halda daglegum stjórnunarheimildum við ráðningar og rekstur í nýju skipulagi.

Gert er ráð fyrir að samráðsferlið standi fram í nóvember og þá taki við mótun tillagna.