13 október 2025
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Úthlutun nýliðunarstuðnings
Atvinnuvegaráðuneytið hefur úthlutað nýliðunarstuðningi í landbúnaði fyrir árið 2025 . Markmiðið með stuðningnum er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði.
Styrkur til einstakra nýliða getur numið allt að 20% af fjárfestingakostnaði, þó að hámarki níu milljónir króna. Heimilt er að veita stuðning til sömu fjárfestingar í allt að þrjú ár eða þar til hámarki er náð.
Fjöldi gildra umsókna voru 108, þar af voru 45 frumumsóknir og 63 framhaldsumsóknir.
Þetta er mesti fjöldi umsókna frá upphafi en nýliðunarstuðningur var fyrst veittur árið 2017. Til úthlutunar nú voru kr. 177,1 milljón króna.