14 október 2025
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Áhrifa- og úthlutunarskýrsla um græna og sjálfbæra fjármögnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt skýrslu þar sem gerð er grein fyrir nýtingu andvirðis og umhverfisávinningi af grænni og sjálfbærri skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs. Þetta er í fyrsta sinn sem slík skýrsla er gefin út en í skýrslunni gerð grein fyrir því hvernig andvirði grænnar skuldabréfaútgáfu í evrum (gefið út í mars 2024) og kynjuðu skuldabréfi í evrum (gefið út í júní 2024) hefur verið ráðstafað. Ráðuneytið birtir slíka skýrslu árlega þar til að andvirðinu hefur verið að fullu ráðstafað.
Alls var 236,9 milljónum evra af andvirði útgáfunnar (750 milljónir evra af grænu skuldabréfunum og 50 milljónum evra af kynjaða skuldabréfinu) ráðstafað til fjármögnunar ríkisútgjalda á árinu 2024.Úthlutanirnar eru í samræmi við viðmið sem sett eru í sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs sem gefinn var út af fjármála- og efnahagsráðuneytinu í apríl 2023.
- Áhrifa- og úthlutunarskýrsla um græna og sjálfbæra fjármögnun (skýrslan er á ensku)