14 október 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið
Frá orðum til aðgerða – saman tryggjum við öryggi barna
Starfsfólk víðs vegar að úr forvörnum og þjónustu við börn kom saman á vinnufundi um samræmd viðbrögð við ofbeldi meðal barna í gær á Reykjavík Natura. Fundurinn var fjölsóttur með um 320 þátttakendum og markaði hann mikilvægt skref í átt að samstilltu átaki gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum.
Vinnufundurinn var hluti af 25 aðgerðum stjórnvalda sem miða að því að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi meðal barna. Lögð var áhersla á hagnýtar lausnir, samræmd viðbrögð og samstarf allra helstu stofnana og þjónustuaðila sem starfa með börnum, í anda farsældarlaganna.
„Kerfin þurfa að koma saman í kringum barnið, ekki barnið í kringum kerfið. Fyrir það þarf samtal og samstarf og sýnir mikil aðsókn á vinnufundinn að viljinn er til staðar. Aðgerðir stjórnvalda eru allar farnar af stað og byggja þær á þessu samstarfi,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.
Á fundinum voru kynnt ýmis úrræði og verkfæri sem styðja við forvarnir og viðbrögð gegn ofbeldi, meðal annars á sviði menntunar, frístundastarfs, heilbrigðis, íþrótta, félagsþjónustu og löggæslu. Fyrirlesarar komu frá fjölmörgum stofnunum, þar á meðal Barna- og fjölskyldustofu, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, heilbrigðisráðuneytinu og Heimili og skóla – landssamtökum foreldra.
„Ég vil sérstaklega undirstrika að þessi málaflokkur skiptir mig miklu máli og ríkisstjórnin stendur saman að því og er sameinuð um það að ætla að gera betur hvað varðar börn og gera betur hvað varðar forvarnir gegn ofbeldi, viðbrögð gagnvart ofbeldi og að við séum að komast á þann stað að börn sem búa við þann veruleika fái það skjól sem við getum veitt þeim,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í ávarpi sínu.
Eftir hádegi unnu þátttakendur í hópum að skrifborðsæfingum þar sem áhersla var lögð á hagnýta þjálfun og viðbrögð í flóknum aðstæðum. Markmið fundarins var að færa forvarnir úr orðum til aðgerða og styrkja fagfólk í því mikilvæga hlutverki að tryggja öryggi barna.
„Öll börn eiga rétt á að alast upp án ofbeldis,“ voru lokaorð Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra sem sleit vinnufundinum og þakkaði um leið fundargestum fyrir sitt framlag við að láta þá sýn rætast.
Upptaka
Auk þátttakenda á staðnum nýttu 550 sér streymið. Streymt var frá kynningum fyrir hádegi og lokaorðum og er upptaka aðgengileg hér: