14 október 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Samkomulag undirritað við Lettland vegna Uppbyggingarsjóðs EES
Samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Lettlands hins vegar, var undirritað í Riga í síðustu viku. Í framhaldinu hefst undirbúningur úthlutana úr sjóðnum í Lettlandi á nýju sjóðstímabili 2021-2028.
Markmið Uppbyggingarsjóðsins er að stuðla að félagslegri og efnahagslegri samheldni innan Evrópu og efla tvíhliða tengsl milli gjafríkjanna, þ.e. Íslands, Liechtenstein og Noregs, og þeirra fimmtán ríkja Evrópusambandsins sem njóta stuðningsins.
Rannís mun gegna hlutverki sérstaks samstarfsaðila fyrir hönd íslenskra stjórnvalda vegna verkefna sjóðsins í viðtökuríkjunum.