14 október 2025
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Umfangsmikill undirbúningur að nýju öryggisúrræði
Ráðherra heimsótti Sikringen í Slagelse sem er einstakt úrræði í dönsku heilbrigðis- og réttarkerfi: Öryggisréttargeðdeild sem sameinar ströngustu öryggisráðstafanir við markmið um meðferð og mannhelgi sjúklinga.
Ráðherra heimsótti einnig Kofoedsminde í Rødby sem er sérhæfð öryggis-, dvalar- og meðferðarstofnun fyrir fullorðna með þroskahömlun sem hlotið hafa dóma vegna alvarlegra brota. Kofoedsminde sinnir viðkvæmum og krefjandi markhópi þar sem öryggi, mannréttindi og sértæk fagþekking verða að fara saman. Styrkleikar úrræðisins eru skýr stigskipting öryggis, teymisvinna og markviss meðferð sem byggir á reglulegu áhættumati og mælanlegum markmiðum.
„Það var afar fróðlegt að kynnast því hvernig öryggisvistun fer fram í Danmörku. Við getum lært mikið af reynslu nágrannaþjóðar okkar og erum nú betur í stakk búin til að skipuleggja uppbyggingu öryggisvistunarúrræðis á Íslandi, “ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Úrræði sem hingað til hefur skort
Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn hefur verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið er hluti af afar umfangsmikilli vinnu stjórnvalda í málaflokknum.
„Svo árum skipti hefur verið ákall um að stjórnvöld nái utan um þennan málaflokk. Nú höfum við gengið í verkið. Loksins erum við að ná heildstætt utan um hóp fólks sem þarf sértæk úrræði – úrræði sem hingað til hefur skort. Nýja stofnunin mun gjörbreyta landslaginu. Við stöndum þar bæði vörð um mannréttindi og réttláta málsmeðferð þeirra einstaklinga sem um ræðir – og gætum um leið að öryggi almennra borgara,“ segir ráðherra.
Íþróttasalurinn í Sikringen í Slagelse þar sem rekin er öryggisréttargeðdeild.
Í Kofoedsminde.