15 október 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Heilsugæslan þríefld í Hlíðunum
„Heilsugæslan er hjartað í heilbrigðiskerfinu og starfsfólk hennar er púlsinn,“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra þegar hún ávarpaði starfsfólk og gesti við formlega opnun á starfsemi þriggja starfseininga Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) í Skógarhlíð í gær. Auk heilsugæslu er þar til húsa Heilaörvunarmiðstöð HH og í þessum mánuði fluttist Geðheilsuteymi taugaraskana í þriðja rýmið í húsinu í Skógarhlíð sem HH hefur nú að fullu til umráða fyrir starfsemi sína.
Alma fagnaði því sérstaklega að nú hafi Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana komist í húsnæði sem henti starfseminni vel því reynslan sýni að góð aðstaða skipti miklu máli svo heilbrigðisstarfsemi blómstri.
Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana sinnir einstaklingum 18 ára og eldri með alvarlegar eða óvenjulegar taugaþroskaraskanir, en fyrst og fremst þroskahömlun.
Eftir stutta opnunarathöfn fóru heilbrigðisráðherra og aðrir gestir í stutta kynningarferð um húsnæðið. Þar var meðal annars kynnt starfsemi Heilaörvunarmiðstöðarinnar þar sem veitt er sérhæfð meðferð við meðferðarþráu þunglyndi.
Loks var gengið um Heilsugæsluna Hlíðum. Húsnæði stöðvarinnar var hannað sérstaklega fyrir heilsugæslustarfsemi og þjónar því afar vel þörfum skjólstæðinga sinna sem eru um 15.000 talsins.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, tók undir með ráðherra um hve gott húsnæði skipti miklu máli fyrir starfsemina. Dæmin sýni að það skipti máli fyrir starfsanda, stöðvum í góðu húsnæði haldist betur á starfsfólki og eigi auðveldara með að laða að sér gott starfsfólk. En fyrst og fremst séu það skjólstæðingarnir sem njóti þess að fá góða þjónustu í húsnæði sem sé sérstaklega hannað fyrir starfsemina.