15 október 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Tillögur í landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu samþykktar á Alþingi

{image.Description}
DL

Breytingar á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim voru samþykktar á Alþingi 9. október sl.

Meginmarkmið laganna er að tryggja að unnt sé að innleiða þær tillögur sem lagðar eru fram í sameiginlegu stefnuskjali stjórnvalda og bænda, Landsáætlun um útrýmingu sauðfjárriðu, sem undirrituð var af ráðherra, forstjóra Matvælastofnunar og formanni Bændasamtaka Íslands sumarið 2024.

Meginefni frumvarpsins er þríþætt.

  • Að atvinnuvegaráðherra verði fengin heimild til að setja í reglugerð skyldu til að rækta gegn dýrasjúkdómi, sem og að geta fyrirskipað ræktun.

  • Að atvinnuvegaráðherra geti falið Matvælastofnun með reglugerð að framfylgja tilteknum aðgerðum og að taka ákvarðanir í tengslum við uppkomu alvarlegra dýrasjúkdóma. Einnig að taka ákvarðanir um greiðslu bóta á grundvelli laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

  • Einnig verður ráðherra heimilt að setja ákvæði í reglugerð um flokkun landssvæða, bæja og starfsstöðva þar sem sérstakar ráðstafanir skulu gilda til að hefta útbreiðslu alvarlegra dýrasjúkdóma í samræmi við eðli viðkomandi dýrasjúkdóms og faraldsfræðilegra þátta.

„Það er gleðiefni að þessar mikilvægu breytingar nái í gegn“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. „Riðan hefur valdið íslenskum bændum og íslensku samfélagi þungum búsifjum í gegnum tíðina. Þetta skref færir okkur nær takmarkinu um riðulaust Ísland.“

Drög að fyrrnefndri reglugerð má finna á samráðsgátt stjórnvalda.