15 október 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu eflingu loftvarna og stuðning við Úkraínu
Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu eflingu loftvarna, framfylgd ákvarðana leiðtogafundarins í Haag um stóraukin framlög til varnarmála og áframhaldandi stuðning við Úkraínu á ráðherrafundi sem lauk í Brussel í dag. Fundurinn fór fram í skugga vaxandi eldflauga- og drónaárása Rússlands gegn Úkraínu, lofthelgisbrota í Póllandi og Eistlandi og aukinna fjölþáttaaðgerða. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd. Farið var yfir stöðuna í öryggisumhverfi Evrópu og áframhaldandi eflingu á vörnum og fælingu bandalagsins, ekki síst loftvarnir og varnir gegn drónum, þ.m.t. árveknisaðgerðir bandalagsins við austurjaðar bandalagsins og á Eystrasalti. Ráðherrarnir ræddu einnig mikilvægi þess að framfylgja ákvörðunum um auknar fjárfestingar í varnargetu bandalagsríkja og áframhaldandi stuðning við Úkraínu.
„Við erum að horfa upp á vaxandi spennu og alvarleg atvik þar sem Rússland beitir hernaðargetu og fjölþáttaaðgerðum til að skapa hræðslu og óvissu. Bandalagið stendur sameinað og sterkt, og heldur áfram að efla varnir sínar og fælingarmátt. Í því felast skýr skilaboð til Rússlands. Þá var rík samstaða um að halda áfram að styðja varnir Úkraínu sem eru samofnar okkar eigin öryggi. Þeirra varnir eru okkar varnir,“ segir Þorgerður Katrín.
Fundað var jafnframt í NATO-Úkraínuráðinu með varnarmálaráðherra Úkraínu, Denys Shmyhal, sem greindi frá stöðunni á vígvellinum og í friðarumleitunum. Utanríkismálastýra Evrópusambandsins, Kaja Kallas, tók einnig þátt í fundinum og gerði grein fyrir áætlunum og aðgerðum ESB hvað varðar m.a. þvingunaraðgerðir og aðgerðir gegn skuggaflota Rússlands.
Að fundi loknum var fundað í stuðningshópi ríkja í varnarbaráttu Úkraínu þar sem rætt var um skipulag og framkvæmd stuðnings ríkjanna við Úkraínu. Á fundinum greindi utanríkisráðherra frá áframhaldandi varnarstuðningi Íslands, m.a. fjárframlög til sameiginlegra innkaupa með milligöngu bandalagsins í þágu Úkraínu og framlög til þjálfunarverkefna, s.s. sprengjueyðingarverkefnis sem Ísland og Litáen leiða. Þá undirrituðu Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin og Pólland samkomulag um sameiginlegt þjálfunarverkefni sem verið er að setja á fót í Póllandi og ætlað er að tryggja þjálfun og búnað fyrir úkraínska herinn.