16 október 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Jarðvarmi í sviðljósinu á Our Climate Future
Virkjun jarðhita getur leikið mikilvægt hlutverk í orkuskiptum Evrópu, en það kallar á að stjórnvöld sýni frumkvæði, marki skýra stefnu og móti regluverk sem styður kröftuglega við öflun endurnýjanlegrar orku.
Þetta er á meðal þess sem kom fram í máli Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Dan Jørgensen, framkvæmdastjóra orku- og húsnæðismála ESB, á viðburðinum Our Climate Future, sem haldinn var í samstarfi Grænvangs, Íslandsstofu og sendiráðs Íslands í Brussel.
Hvöttu ráðherrarnir Evrópuríki til aukins samstarfs á sviði rannsókna, fjármögnunar og markaðsþróunar. „Jarðhiti getur orðið einn af hornsteinum hreinorkuframtíðar Evrópu,“ sagði Dan Jørgensen og benti á að jarðhitinn væri staðbundinn og stöðugur orkugjafi sem gæti stutt við seiglu og orkusjálfstæði ríkja.
Umtalsverður áhugi var á viðburðinum sem bar undirtitilinn Geothermal Energy as a Driver for European Competitiveness, Decarbonisation and Energy Security.
Ríki Evrópu leggja nú aukin kraft í orkuskipti og sjálfstæði í orkumálum. Jóhann Páll benti í ávarpi sínu á þau miklu áhrif sem notkun jarðhita geti haft á orkuskipti og orkuöryggi. Í því sambandi vakti ráðherra athygli á nýlegri skýrslu ÍSOR sem sýni að á Íslandi séu í raun engin köld svæði. „Með nýrri tækni og markvissum stuðningi er nú verið að endurmeta staði sem áður töldust til jaðarsvæða varðandi virkjun jarðvarma. Evrópa býr einnig yfir slíkum möguleikum og með réttu tækjunum og stefnunni er hægt að nýta þá,“ sagði ráðherra og fjallaði um átakið Jarðhiti jafnar leikinn þar sem 18 verkefni hlutu nýlega styrki til jarðhitaleitar vegna húshitunar. „Jarðhiti er ekki aðeins tæki til þess að jafna lífskjör um allt land, heldur á hann líka að vera drifkraftur verðmætasköpunar og atvinnuþróunar.“
Dan Jørgensen, framkvæmdastjóri orku- og húsnæðismála ESB, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel á viðburðinum Our Climate Future.
Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel sagði Evrópu geta horft til árangurs Íslands í jarðhitamálum. „Ísland er samstarfsaðili á vegferð Evrópu að orkuskiptum og góð fyrirmynd að því hvernig nýting jarðvarma getur stuðlað að orkuöryggi, sanngjörnu orkuverði og kolefnislosun.“
Í ávarpi sínu vakti Jóhann Páll vakti einnig athygli gesta á íslenskum tilraunum með djúpborun og virkjun ofurhita sem kastljósinu verður beint að á hliðarviðburðinum Superhot Summit á Arctic Circle sem hefst í dag. „Takist að virkja þessa auðlind getur það skilað margfalt meiri orku en við höfum aðgang að í dag,“ sagði Jóhann Páll.