16 október 2025

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Reglugerð um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt til umsagnar í Samráðsgátt

{image.Description}
Hekla séð úr Þjórsárdal.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt.

Markmið reglugerðarinnar er að hvetja til og styrkja verkefni og framkvæmdir einstaklinga, sveitarfélaga, félagasamtaka og fyrirtækja sem vinna að vernd og endurheimt vistkerfa, landgræðslu og skógrækt. Þá fjölgar þeim verkefnum sem hlotið geta stuðning í landgræðslu og skógrækt frá því sem verið hefur.

Samræmt stuðningskerfi fyrir landgræðslu og skógrækt

Reglugerðinni er ætlað að marka ákveðin skref í að samræma og sameina í eitt sameiginlegt kerfi stuðningsverkefni sem áður voru á hendi tveggja stofnana, Landgræðslunnar og Skógræktarinnar, nú Land og skógur. Kerfið á að ná yfir bæði landgræðslu og skógrækt og verður þannig komið á heildstæðum ramma fyrir úthlutun styrkja sem á að stuðla að einfaldari stjórnsýslu, skýrari reglum og auknu gagnsæi.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Þátttaka almennings, félagasamtaka, hagaðila og stofnana í endurheimtarverkefnum og skógrækt eru lykilatriði í að ná þeim markmiðum sem stefnt er að sviði loftslagsmála og eflingu líffræðilegrar fjölbreytni.“

Nýmæli verkefna í reglugerð

Í reglugerðardrögunum eru talin upp styrkhæf verkefni, en mörg verkefnanna hafa notið stuðnings ríkisins um ára og jafnvel áratuga skeið. Má þar m.a. nefna varnir gegn landbroti, endurheimt votlendis, landgræðslu, skógrækt og skjólbeltarækt. Þau nýmæli eru í reglugerðardrögunum að þar bætast  við ný verkefni sem hlotið geta stuðning og má þar nefna:

         i.            verndun kolefnisríkra vistkerfa,

       ii.            gerð heildstæðra landnýtingaráætlana fyrir jarðir, vatnasvið og/eða landslagsheildir og

     iii.            fræðsla, vöktun og samfélagsverkefni.

Gert er ráð fyrir að Land og skógur auglýsi árlega eftir umsóknum um stuðning, sjái um samningsgerð, hafi eftirlit með verkefnum og meti árangur þeirra í samræmi við lög um landgræðslu og lög um skóga og skógrækt.

Setning reglugerðarinnar er í samræmi við aðgerðaráætlunina Land og líf, stefnu stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og í samræmi við drög að stefnu um líffræðilega fjölbreytni. Reglugerðin er sett á grundvelli 8. gr. laga um landgræðslu og 7. gr. og IV. kafla laga um skóga og skógrækt.

Frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 6. nóvember nk.

Drög að reglugerð um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt

Land og líf - Aðgerðaáætlun

Land og líf - Stefna

Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum

Drög að stefnu um líffræðilega fjölbreytni