17 október 2025
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Ný gæðaviðmið fyrir innra og ytra mat í framhaldsskólum
Gefin hafa verið út ný gæðaviðmið fyrir innra og ytra mat í framhaldsskólum. Ný viðmið eru liður í heildarendurskoðun mennta- og barnamálaráðuneytisins á framkvæmd innra og ytra mats í leik-, grunn- og framhaldsskólum og menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Ytra mat á framhaldsskólum á grundvelli nýrra gæðaviðmiða hófst í vikunni.
Innra mat er grundvöllur stöðugra umbóta í skólastarfi þar sem starfsfólk skóla er drifkrafturinn í bættu skólastarfi. Ytra mat gefur aftur á móti utanaðkomandi sýn. Bæði gegna mikilvægu hlutverki í að bæta nám og þjónustu skólanna og að hafa eftirlit með því að það sé gert. Að byggja innra og ytra mat á sömu gæðaviðmiðunum skapar samræmi, aukið gagnsæi, skýrari markmið og umbótaáherslur í mati á skólastarfi.
Tilgangur gæðaviðmiða er að mynda undirstöðu að mati á framhaldsskólum og tryggja að bæði innra og ytra mat styðji við sömu langtímamarkmið og umbótaáherslur.
Í þessari viku fer fram ytra mat á fyrsta framhaldsskólanum, Menntaskólanum að Laugarvatni, á grundvelli nýrra gæðaviðmiða.