17 október 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Forsætisráðuneytið
Nýr forgangslisti vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu
Ríkisstjórn Íslands samþykkti í morgun nýjan forgangslista vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB) að undangengnu samráði við utanríkismálanefnd Alþingis og opnu samráði við hagaðila í samráðsgátt stjórnvalda.
Forgangslisti mála vegna hagmunagæslu Íslands gagnvart ESB var fyrst gefinn út árið 2016. Útgáfa forgangslistans var mikið framfaraskref og hefur síðan reynst lykilverkfæri við skipulagningu hagsmunagæslunnar. Nýr forgangslisti hefur verið unninn samkvæmt endurskoðaðri aðferðafræði, sem miðar að því að greina málefni á vettvangi ESB með heildstæðum hætti og draga þannig fram á skipulegan hátt þau mál þar sem talið er að Ísland kunni að hafa sérstaka hagsmuni, sbr. nánari umfjöllun um aðferðafræðina í forgangslistaskjalinu.
Gildissvið forgangslistans hefur jafnframt verið útvíkkað og tekur hann nú til samskipta Íslands og ESB heildstætt, þ.e. ekki aðeins til samskipta og málefna sem varða EES-samninginn heldur til tvíhliða og marghliða samskipta jafnframt.
Þá tekur gildistímabil listans nú mið af stefnumótunartímabilum ESB, sem afmarkast af Evrópuþingskosningum á fimm ára fresti. Nýr forgangslisti er því í grunninn, samkvæmt efni sínu, til fimm ára, 2024–2029. Hins vegar er gert ráð fyrir heildarendurskoðun á miðju tímabili auk reglulegrar uppfærslu þess á milli, m.a. með hliðsjón af árlegum starfsáætlunum framkvæmdastjórnar ESB, nýjum málum sem fram koma og endurmati á eldri málum, eftir því sem tilefni er til og þörf krefur.
Sjá nánar um forgangsröðunina hér.