17 október 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Pólitískt samráð við Chile
Skrifað var undir viljayfirlýsingu um samstarf á sviði jafnréttismála milli Íslands og Chile í tengslum við pólitískt samráð sem fram fór milli landanna í vikunni. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, leiddi pólitíska samráðið fyrir hönd Íslands en fyrir sendinefnd Chile fór Rodrigo Olsen, skrifstofustjóri stefnumótunar í utanríkisráðuneyti landsins.
Með undirritun viljayfirlýsingar um samstarf á sviði jafnréttismála lýsa löndin tvö því yfir að þau hyggist beita sér sameiginlega fyrir kynjajafnrétti á alþjóðavettvangi og hvetja önnur ríki til að standa við skuldbindingar sínar. Byggt er á góðum grunni en Ísland og Chile hafa átt gott samstarf á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og víðar um mannréttindamál, þ.á.m. jafnréttismál. Chile hefur lagt áherslu á kynjajafnrétti í alþjóðastarfi undir merkjum femínískrar utanríkisstefnu og er leiðandi meðal ríkja í Suður-Ameríku í málaflokknum. Þá hefur Ísland lagt mikla áherslu á alþjóðlegt málsvarastarf á sviði jafnréttismála um árabil og að ríki frá ólíkum heimsálfum taki höndum saman. Málefni Mið-Austurlanda voru einnig rædd á pólitíska samráðinu, ólöglegt innrásarstríð Rússa í Úkraínu, sem og málefni hafsins og fiskveiðimál og fleira.