17 október 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til flugskóla vegna reksturs bóklegs hluta samtvinnaðs atvinnuflugmannsnáms

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til reksturs bóklegs hluta samtvinnaðs atvinnuflugmannsnáms. Markmið styrkjanna er að styðja við atvinnuflugmannsnám á Íslandi.

Styrkirnir eru veittir á grundvelli 42. gr. laga um opinber fjármál, í samræmi við stefnu og markmið ráðherra í málaflokki, reglugerð um styrkveitingar ráðherra og reglur um styrkveitingar mennta- og barnamálaráðherra.

Heildarúthlutun styrkja er allt að 30 m.kr..

Flugskólar sem fá úthlutun skulu hafa haft viðurkenningu Samgöngustofu til bæði bóklegrar og verklegrar kennslu til atvinnuflugmannsréttinda. Áhersla er lögð á að umsækjendur reki flugskóla þar sem boðið er upp á samtvinnað atvinnuflugmannsnám (eftir ATPL integrated námsleið), bæði bóklegan og verklegan hluta, hér á landi og hafi til þess fullnægjandi aðstöðu og faglega getu. Umsækjendur þurfa að hafa rekið flugskóla sem býður upp á slíka kennslu á Íslandi á síðasta skólaári: 2024-2025.

Óskað er eftir eftirfarandi fylgigögnum með umsóknum:

  • Afriti af viðurkenningu Samgöngustofu á því að umsækjandi sé samþykkt þjálfunarfyrirtæki (ATO leyfi)
  • Afriti af leyfi Samgöngustofu til að halda úti kennslu samtvinnaðs atvinnuflugmannsnáms (ATPL integrated kennsluleyfi)
  • Upplýsingum um fjölda útskriftarnema úr samtvinnuðu atvinnuflugmannsnámi (eftir ATPL integrated námsleið) sem lokið hafa bæði bóklegu og verklegu námi á vegum flugskólans
  • Upplýsingum um fjárhagsstöðu og ársreikningi fyrir árið 2024
  • Greinargerð þar sem umsækjandi lýsir með greinargóðum hætti markmiðum, áætlun um framkvæmd kennslu og hvernig fyrirhugað er að styrkfé verði nýtt.

Vakin er athygli á því að ráðuneytið áskilur sér rétt til að óska eftir frekari upplýsingum frá Samgöngustofu við úrvinnslu umsókna.

Styrkveitingar verða ákvarðaðar á grundvelli þeirra laga, reglugerðar og reglna ráðherra um úthlutun styrkja sem vísað er til hér að ofan, auk þess sem tekið verður mið af ofangreindum fylgigögnum sem óskað er að fylgi með umsókn.

Umsóknum og tilskyldum gögnum skal skilað til ráðuneytisins á netfangið [email protected] eigi síðar en 14.11.2025. Nánari upplýsingar veitir Fanney Hrafnsdóttir, fanney.hrafnsdottir hjá mrn.is.