17 október 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Utanríkisráðherra fundaði með formanni hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í dag með ítalska aðmírálnum Guiseppe Cavo Dragone en hann er formaður hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins. Á fundinum voru öryggis- og varnarmál á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum helst til umræðu, en einnig var farið yfir vaxandi framlag Íslands innan Atlantshafsbandalagsins og stuðning við varnarbaráttu Úkraínu gegn ólöglegu innrásarstríði Rússlands.
Dragone mun í heimsókn sinni á Íslandi eiga fundi með embættismönnum utanríkisráðuneytisins og fá kynningu á varnarviðbúnaði á Íslandi. Þá mun hann einnig ávarpa Hringborð norðurslóða í Hörpu. Dragone, sem er Ítali sem fyrr segir, var áður herráðsforingi í heimalandi sínu og tók við sem formaður hermálanefndar NATO í janúar s.l. af Hollendingnum Rob Bauer. Um er að ræða fyrstu tvíhliða heimsókn Dragone til Íslands.
Formaður hermálanefndar er hæst setti embættismaður hermálastarfsliðs Atlantshafsbandalagsins. Hann er ráðgjafi framkvæmdastjóra, Mark Rutte, og talsmaður bandalagsins um hernaðartengd málefni. Hann stýrir starfi hermálanefndar sem veitir fastaráði bandalagsins ráðgjöf um hvernig best megi mæta helstu öryggisáskorunum á hverjum tíma. Í hermálanefndinni eiga sæti hermálafulltrúar úr fastanefndum bandalagsríkjanna þrjátíuogtveggja, þar á meðal borgaralegur fulltrúi Íslands.