17 október 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Utanríkisráðherrar Íslands, Færeyja og Grænlands á sameiginlegum fundi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag þríhliða fund með starfssystrum sínum frá Færeyjum og Grænlandi, þeim Sirið Stenberg og Vivian Motzfeldt, í tengslum við Hringborð norðurslóða sem haldið er um þessa helgi í Hörpu. Sameiginleg hagsmunamál landanna þriggja bar hæst í umræðum á fundinum, staðan á vestnorræna svæðinu og samstarf á vettvangi norðurslóðamála.
„Vestnorræna svæðið – Ísland, Grænland og Færeyjar – gegnir sífellt mikilvægara hlutverki í málefnum norðurslóða. Kastljósinu er í auknum mæli beint á þetta svæði og má segja að við stöndum á ákveðnum tímamótum enda blasa við áskoranir, ekki aðeins með tilliti til loftlagsbreytinga heldur einnig með vísan til hnattrænnar samkeppni um auðlindir, sem og öryggis- og varnarmála,“ segir Þorgerður Katrín. „Í ljósi þessa legg ég ríka áherslu á að allt samstarf um málefni sem varða Ísland, Grænland og Færeyjar, vestnorræna svæðið sem slíkt, byggist á gagnkvæmri virðingu og jafnræði, ekki á þrýstingi stórþjóðanna eða einhliða aðgerðum. Um þá afstöðu ríkir mikil eindrægni með Íslandi, Færeyjum og Grænlandi.“
Utanríkisráðherra átti einnig tvíhliða fund í dag með færeyska utanríkisráðherranum, Sirið Stenberg, þar sem tvíhliða samskipti Íslands og Færeyja voru til umræðu. Hún átti í gær hádegisverðarfund með Elinu Valtonen, utanríkisráðherra Finnlands, sem var stödd á Íslandi til að sækja Hringborð norðurslóða.