20 október 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagur náms- og starfsráðgjafar – faglegur stuðningur til farsældar og framtíðar

{image.Description}

Í dag er dagur náms- og starfsráðgjafar haldinn hátíðlegur í nítjánda sinn. Af því tilefni vill mennta- og barnamálaráðuneytið vekja athygli á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar sem lykilþáttar í menntakerfinu, bæði fyrir farsæld einstaklinga og samfélagsins.

Náms- og starfsráðgjöf er liður í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Í 2. aðgerðaráætlun menntastefnunnar er lögð áhersla á að byggja upp og tryggja aðgang að markvissri og samfelldri náms- og starfsrágjöf, óháð aldri, búsetu eða félagslegri stöðu. Markmiðið er að tryggja jöfn tækifæri til menntunar alla ævi og til þátttöku á vinnumarkaði.

Náms- og starfsráðgjafar gegna mikilvægu hlutverki í að skapa tengsl milli náms og atvinnulífs, styðja við nemendur í námi þeirra og draga úr líkum á brotthvarfi ásamt því að efla sjálfstraust og framtíðarsýn einstaklinga. Þeir vinna með nemendum á persónulegum forsendum og stuðla að því að hver og einn finni sinn farveg – í námi, starfi og lífi.

Mennta- og barnamálaráðuneytið vill í dag þakka náms- og starfsráðgjöfum um land allt fyrir þeirra mikilvæga framlag. Þeir eru fagfólk sem styður við einstaklinga á tímamótum, í vexti og í mótun framtíðar.