21 október 2025
/
Dómsmálaráðuneytið
Eyvindur G. Gunnarsson skipaður dómari við Landsrétt
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Eyvindur G. Gunnarsson verði skipaður dómari við Landsrétt frá 24. október 2025.
Eyvindur G. Gunnarsson lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1996 og meistaraprófi í lögum frá Duke háskóla í Bandaríkjunum 1998. Þá öðlaðist hann réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 1997 og leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti Íslands árið 2006.
Að námi loknu starfaði Eyvindur um skeið í umhverfisráðuneytinu og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu sem og sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Árin 2000-2006 var Eyvindur sjálfstætt starfandi lögmaður en hefur frá þeim tíma starfað við lagadeild Háskóla Íslands, þar af sem prófessor frá árinu 2013 og sem forseti deildarinnar 2013-2016. Eyvindur hefur jafnframt verið dómandi við Endurupptökudóm frá 2021 og tekið sæti sem varadómari í Hæstarétti í tíu málum.
Þá hefur Eyvindur átt sæti í stjórnsýslunefndum og stjórnum opinberra stofnana, þar á meðal í ráðgjafanefnd Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, stjórn Samkeppniseftirlitsins og stjórn Happdrættis Háskóla Íslands. Eyvindur hefur að auki ritað fjölda fræðirita- og greina á sviði lögfræði.
Eyvindur G. Gunnarsson hefur verið settur dómari við Landsrétt frá 1. október 2024.