21 október 2025
/
Forsætisráðuneytið
Flýta vinnu við undirbúning viðskiptasamnings milli Íslands og Grænlands
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var í dag í opinberri vinnuheimsókn í Nuuk í Grænlandi og fundaði með Jens-Frederik Nielsen, formanni grænlensku landsstjórnarinnar, ásamt því að heimsækja stofnanir, skóla og fyrirtæki í höfuðstað landsins. Í heimsókninni áréttuðu leiðtogarnir órofa samstöðu þessara tveggja vinaþjóða og nánu granna á Norðurslóðum og ræddu framgang samstarfs milli landanna á grunni samstarfsyfirlýsingar Íslands og Grænlands frá 2022. Forsætisráðherra og formaður landsstjórnarinnar lögðu áherslu á að ræða viðskiptamál landanna og í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoganna kemur fram að samþykkt hafi verið að flýta undirbúningsvinnu fyrir gerð viðskiptasamnings milli Grænlands og Íslands.
„Við Jens-Frederik Nielsen áttum í dag góð og efnisrík samtöl um samstarf landanna sem er afar víðtækt. Við sammæltumst um að fylgja eftir samstarfsyfirlýsingu landanna frá 2022 af auknum krafti og höfum við þegar rætt þann metnað okkar við ríkisstjórnarborðið í báðum löndum. Það er ríkur vilji til að efla viðskiptatengsl á milli landanna og að stilla saman strengi í sameiginlegri hagsmunagæslu ríkjanna í Norður-Atlantshafi,“ segir forsætisráðherra. „Til viðbótar ræddum við einnig möguleg samstarfsverkefni við að styrkja innviði á svæðinu – til dæmis þegar kemur að lagningu fjarskiptastrengja milli Íslands og Grænlands og fleiri landa í okkar heimshluta. Þetta var ánægjuleg heimsókn. Grænland er magnað land og ég legg sérstaka áherslu á að efla samstarfið við okkar nánustu granna.“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Jens-Frederik Nielsen formaður grænlensku landsstjórnarinnar
Í sameiginlegu yfirlýsingunni sem var undirrituð í dag af forsætisráðherra og formanni grænlensku landsstjórnarinnar kemur fram að löndin hafi í langan tíma átt í nánum og traustum samskiptum á jafningjagrundvelli og vinni náið saman í norrænu samstarfi, í starfi Vestnorræna ráðsins og á vettvangi Norðurskautsráðsins. Í yfirlýsingunni kemur fram að sýn landanna á framtíð Norður-Atlantshafssvæðisins er sú sama og að saman munu Ísland og Grænland vinna að framgangi sjálfbærrar efnahagsþróunar á svæðinu. Segja leiðtogarnir að Grænland og Ísland hafi árangursríka sögu að segja hvað sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda varðar og að skilningur á aðstæðum á Norðurslóðum sé forsenda þess að mæta þeim áskorunum sem á svæðinu eru og til að geta nýtt þau ríku tækifæri sem þar gefast.
Í yfirlýsingunni kemur fram að fáar þjóðir eigi eins mikið undir því að geta átt frjáls og hindrunarlaus viðskipti og þær sem búi á hinu strjálbýla Norður-Atlantshafssvæði. Þá kemur fram að það séu rík tækifæri í að efla viðskipti landanna og skuldbinda leiðtogarnir sig til að hraða vinnu við undirbúning viðskiptasamnings.
Samstarfsyfirlýsing Grænlands og Íslands sem undirrituð var 2022 tekur til samstarfs á sviði viðskiptamála, fiskveiðimála, efnahagsmála, umhverfis- og auðlindamála, jafnréttismála, menntamála og menningarmála og er unnið að þessum málaflokkum með fjölbreyttum hætti í stjórnkerfi beggja landa.
Hjálagt fylgir yfirlýsingin sem var undirrituð í dag á ensku.