21 október 2025
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Sameining Farice, Neyðarlínunnar og Öryggisfjarskipta til skoðunar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið vinnur nú, í samráði við dómsmála-, innviða- og heilbrigðisráðuneyti að því að kanna mögulegan samruna félaganna Farice ehf., Neyðarlínunnar ohf. og Öryggisfjarskipta ehf. Verkefnið er liður í viðleitni stjórnvalda til að efla öryggi og viðnámsþrótt landsins. Kröfur til rekstraröryggis og áreiðanleika innviðafyrirtækja hafa aukist verulega á undanförnum árum, bæði vegna vaxandi netöryggisógna, náttúruvár og breyttra alþjóðlegra aðstæðna.
Markmið verkefnisins er að:
- tryggja öruggari og skilvirkari rekstur fjarskipta- og almannaþjónustu sem eru lykilinnviðir fyrir Ísland,
- efla rekstraröryggi og skilvirkni með samnýtingu innviða og stoðeininga
- auka sérhæfingu og þekkingardreifingu innan starfseminnar.
Neyðarlínan ohf. rekur neyðarnúmerið 112, móttöku og úrvinnslu neyðarbeiðna, miðlun viðvarana til almennings og samskipta- og samhæfingarlausnir fyrir viðbragðsaðila og sjófarendur.
Farice ehf. á og rekur þrjá fjarskiptasæstrengi sem tengja Ísland við Evrópu auk þess að reka fjarskiptavaraleið um gervihnetti fyrir mikilvæg fyrirtæki og stofnanir.
Öryggisfjarskipti ehf. eiga og reka öruggt fjarskiptanet og -stöðvar fyrir löggæslu, slökkvilið, heilbrigðisþjónustu og aðra viðbragðsaðila og sjófarendur.
Í vinnunni verður sérstaklega gætt að þeirri mikilvægu þjónustu sem félögin veita og rekstrarlegum forsendum hennar. Stefnt er að því að niðurstöður könnunar liggi fyrir um miðjan desember nk. og verði þá tekin ákvörðun um næstu skref.